12.30.2005

... og gleðilegt nýtt ár

Já heillavinir kærir. Megi nýtt ár færa okkur gleði og frið. Ég ætla að geyma ársuppgjörið þangað til á þrettándanum. Það er bara of mikið að gera við að leika við strákana mína. Pís át

12.22.2005

Guð gefi ykkur gleðileg Jól

Með þessari stuttmynd sendí ég mínar bestu jóla og nýársóskir til ykkar allra sem hér staldrið við. Megi lukkan leiða ykkur alla daga.
Stebbi

12.19.2005

Jólakort


var að spá í að senda þessa mynd inn í jólakortakeppnina á ljósmyndakeppni.is en hætti við af því að hún er kannski ekkert svo jólaleg. Hvað finnst ykkur Posted by Picasa

hí hí hí hí

apple pie
You taste like a warm pie. Your homemade goodness
brings comfort to those around you. Your light
crust is a bit flaky, but thats what makes you
so loveable.

How do you taste?
brought to you by

12.13.2005

Engin Jólakort

Fjölskyldan í Múlasíðu hefur ákveðið að senda engin jólakort þetta árið. Þess í stað leggjum við andvirði korta og sendingarkostnaðar inn á reikning Rauða krossins til styrktar fórnarlömbum jarðskjálftanna í Pakistan.
Reikningurinn er 1151-26-00012 kt:530269-2646.

12.08.2005

Betula pubescens ,,jólasnjór"

Posted by Picasa
Annars var þetta fallegur dagur

Myndin afdrifaríka

Posted by Picasa
Gæðin augljóslega takmmörkuð vegna aðstæðna. Hins vegar stóð Elmar Dagur sig eins og hetja

Aumingja ég

Ég er klárlega á hraðri leið til Helvítis núna. Ég steig nefninlega ofan á nunnu í gær. Ragna og Elmar Dagur voru á jólaskemmtun dagmæðra og ég leit við til þess að taka nokkrar myndir. Þegar Elmar dagur féllst á að fara í fangið á Askasleiki stökk ég til með myndavélina framan á nefinu og lenti ofan á nunnu sem kraup á gólfinu og var að opna jólapakka með pínulítilli stelpu. Guð á himnum !! Alvöru nunna og ég steig ofan á hana. Nú þori ég ekki að fara um suðurbrekkuna af ótta við að mæta konugarminum draghaltri við hækju.

12.07.2005

Harðir fjallgöngumenn á veiðum


Tryggvi bróðir þverar gil í Gloppufjalli. Meira að segja rjúpurnar þorðu ekki að elta okkur svona hátt í fjallið. Posted by Picasa

12.02.2005

Loksins, ma´r

Setti nokkrar myndir inn á myndasíðuna mína. Þetta er allt að koma, á eftir að bæta við. Vandamálið leystist þegar ég hakaði í ,, yes, update now" hnappinn á Picasa. Ótrúlega erfið fæðing.