1.26.2006

Plata vikunar

Gleymdi að segja frá því að ég er að hlusta á Beyond the Missouri sky með Charlie Hayden og Pat Metheny. Gítar og bassi, fínt það.

1.18.2006

Endurnýjun kynna

Tók upp á því um helgina að hlusta á Pet Sounds. Snilldarplata sólstrandargæjanna með Wilson í toppformi. Annars er ég að hlusta á Elliott Smith. Öllu nýrri snilld en litlu síðri. Helgin var tíðindalítil. Stússaðist í kringum strákana og Rögnu mína og tók brotna afturrúðuna úr bílnum mínum. Ragna mín keyrir nú um alsæl með byggingaplast límt á afturhlerann í stað hinnar hefðbundnu afturrúðu úr gleri sem svo margir þekkja. Þetta rifjaði upp fyrir mér daga rússajeppans, sem eru mér svo kærir í minningunni. Skrýtið að ég skuli alltaf minnast rússans með hlýhug og halda því fram að þetta hafi verið góður bíll þegar öll skynsemi segir mönnum annað. kannski er það vegna þess aðég stjórnast svo mikið af tilfinningum. Það stendur hinsvegar til að skipta aftur í nýtt og óbrotið gler á næstu dögum.
Mér var á dögunum boðið að kenna byrjendum að spila á hljóðfæri en ég gaf það frá mér, fyrst og fremst vegna þess að kennslan átti að fara fram um miðjan dag þegar ég er í vinnunni. Talandi um vinnuna mína þá er allt í háalofti hjá Akureyrarbæ þessa dagana og erfitt að halda fókus. Eins gott að ég er að fara á hljómsveitaræfingu í kvöld.

1.11.2006

Maður fyrir borð

Færslan með áramótauppgjörinu datt út. Það var líka allt í lagi. Hún var mest um að ég ætlaði ekkert að gera upp árið.

Ja, maður lendir í ýmsu

Jæja 2006 er byrjað fyrir alvöru og nú er maður með mörg járn í eldinum. Það er óhætt að segja að ég eigi eftir að koma víða við á þessu ári, enda erum við hjónin búin að bóka ferð til Ameríku ásamt þeim heiðurshjónum Valgerði og Kristjáni, sem jafnframt því að sinna daglegum störfum gegna því mikilvæga hlutverki að vera tengdaforeldrar mínir. Við förum til Boston, Orlando og siglum síðan yfir til Bahamaeyja. Ferðin tekur hálfan mánuð og ég er farinn að hlakka til. Síðan er jafnvel í bígerð að fara til Hollands og spila um mitt sumar en það er ekki alveg í hendi enn. Meira um það síðar. Ég hef verið beðinn um að spila í showi sem á að setja upp á hótel KEA og einnig var ég beðinn um að kenna byrjendahóp í tónlistarskóla hér í bæ. ( kenna ? ég ? veit ekki)
Það er meira í farvatninu á tónlistarsviðinu því nú hefur verið ákveðið að Dr.Möller hefji æfingar að nýju í byrjun febrúar með það að augnarmiði að halda tónleika með frumsömdu efni í byrjun apríl. Það er einnig tilhlökkunarefni. Ég veit ekki hvort ég kem einhverju í verk eða hvort ég sit bara í sófanum heima lamaður og með hjartslátt af spenningi eitthvað framan af árinu.

1.04.2006

Góður ásetningur

Er ekki helsta áramótaheitið meiri hreyfing