Ég var að fara yfir mbl.is og sá ástæðu til að deila með ykkur hugenningum mínum um málefni líðandi stundar.
Guðhræddir menn, og konur, eru enn að skrifa í blöðin um það hversu ósmekkleg símaauglýsingin nýja er. Ég er ósmmála því að mörgu leiti. Ég skrifaði um það áður að það er einungis vegna eigin óstöðugleika sem menn geta ekki tekið gríni. Í annan stað er það svo að auglýsingin er smekklega unnin, gerfi og sviðsmynd til fyrirmyndar og allt fas manna flott. Ósmekklegt hefði verið að sýna Maríu Magðalenu senda Jesú djörf myndskilaboð og ýja þar með að sögusögnum um ástarsamband þeirra. Ósmekklegt hefði verið að sýna rómverska hermenn senda myndir af Jesú á krossinum til félaga sinna, og fleira og fleira...
Hins vegar finnast mér ósmekklegar auglýsingar þar sem fólki er neitað um hina og þessa þjónustu af því að það er ekki með peninga í einhverjum sjóðum (Kannski af því að ég á ekkert gríðarlega mikið sparifé) og verður að sætta sig við að lepja dauðan úr skel.. og fleira þessu tengt því nú hefur fjármálaráðherra birt fjárlagafrumvarp sitt, með tugi milljóna í plús. Það dylst engum að fjármálaráðherra, brosandi og glaðbeittur, ætlar að ná þessum niðurstöðum sínum með því að loka sjúkradeildum, halda launum ríkisstarfsmanna niðri, skera niður í samgöngumálum og í heild að halda í við þjónustu. Semsagt að senda skattpeningana okkar ekki út í samfélagið heldur að halda þeim eftir í von um að sýna einu sinni tekjuafgang. Það þarf hins vegar ekkert að örvænta, þar sem enn hefur ekki verið gefið út fjárlagafrumvarp sem haldið hefur vatni. Bíðum frekar eftir svokölluðum fjáraukalögum þar sem sannleikurinn kemur í ljós.
Það fer líka í taugarnar á mér að blöðin eru endalaust að birta fréttir að eiturlyfjanotkun og misstigum fræga fólksins. ólán þeirra er þannig æst upp í að vera eftirsóknarvert og tilvalið til fyrirmyndar fyrir óharnaðra unglinga. Ég fæ ekki séð að frétt um það að Mick Jagger hafi áhyggjur að því að söngkonan Amy Winehouse sé að drepa sig á ólifnaði komi okkur nokkurn skapaðan hlut við eða eigi erindi í íslenska fjölmiðla. Ef fólk kýs að sólunda lífi sínu í ólifnað hlýtur það að taka afleiðingum þess, sem eru altaf heilsuleysi eða dauði. Nær væri að sýna myndir að dauðum fíklum, öðrum til aðvörunar
Eins hefur það farið í taugarnar á mér árum saman að vegna einhverra fíflalegra húsfriðunarlaga er skjaldarmerki íslensku þjóðarinnar ekki á alþingishúsinu, heldur danska krúnan. Þetta er þjóðinni allri til ævarandi háðungar, ég meina, hvaða heilvita maður hefur merki fyrrum kúgara sinna á húsi æðsta valds þjóðarinnar !! ég gæti sprungið !!!