7.15.2008

Danmerkurferð... eða ...

 Jebb, þá er að líða að brottför og viti menn... Elmar Dagur náði að hlunka sér út af trampolíninu og handleggsbrotna. Það er því enn í óvissu hvort hann kemst með á föstudaginn eða hvort hann og Ragna þurfa að bíða fram yfir helgi með að koma út, en ákveðið hefur verið að hún verði eftir með honum en ég og Steinar Logi förum út með hópnum ef eitthvað kemur upp. Annars fór hann í aðgerð seint í gærkvöldi og vinstri hendin á honum sett saman aftur og virtist skoðun í morgun sýna að allt liti vel út. En bæklunarlæknir vildi þó ekki gefa grænt ljós fyrr en eftir myndatöku á fimmtudaginn. Elmar sýndi einstaka hetjulund þar sem við biðum frá hálf fimm til rúmlega tíu í gærkvöldi eftir að komast í aðgerð og fannst fínt að gista á barnadeildinni í nótt, fullt af vídeói og stjanað við hann á alla lund. Þökkum þessu góða fólki á spítalanum mikið vel fyrir okkur.
Posted by Picasa

NIkulásarmót

 
 
 Þá er Nikulásrmóti lokið og Steinar Logi og félagar urðu í öðru sæti í sínum flokki. Sannarlega glæsilegur árangur og Steinar Logi stóð sig eins og hetja, skoraði tvö mörk og var mjög duglegur á kantinum. Þetta ætlar að verða árviss skemmtun hjá okkur og gaman að fara í útilega samhliða þessum fótboltamótum, þó svo Ólafsfjörður hafi skartað bæði þoku og hellirigningu...
Posted by Picasa