5.04.2005

Akureyrarbær fær verðlaun í stjórnun ...

sem er ekkert skrítið.
Í fyrra var haldin róðrarkeppni milli Akureyrar og Randers í Danmörku, vinabæjar Akureyrar. Keppt var á áttæringum og unnu danirnir með 1 km. mun. Þetta féll að vonum í grýttan jarðveg og bæjarstjórnin setti upp vinnuhóp til þess að skoða málið, með það að augnamiði að vinna næstu keppni. Eftir mikla vinnu komst hópurinn að því að hjá dönunum voru sjö menn sem réru en einn stjórnaði. Í Akureyrarliðinu voru sjö sem stjórnuðu og einn sem réri. Vegna þessarar krísu fékk bæjarstjórnin ráðgjafafyrirtæki til þess að kanna strúktúr liðsins og gera tillögu að nýju skipulagi. Stjórnunarfræðingarnir komust að því að of margir væru í stöðu stjórnanda. Því var strax farið í skipulagsbreytingar og í stað þess að hafa sjö stjórnendur voru ráðnir einn verkefnisstjóri, þrír stýrimenn, tveir yfirstýrimenn, einn leiðtogi stýrimanna og einn ræðari, sem var að sjálfsögðu mótiveraður samkvæmt meginreglunni um að breikka starfssvið starfsmanna og færa þeim aukna ábyrgð.
Á dögunum var síðan keppnin haldin á nýjan leik og nú unnu danirnir með 1.5 km. mun.
Bæjarstjórn hefur umsvifalaust látið reka ræðarann og greitt bónus til stjórnenda fyrir þeirra miklu vinnu. Ráðgjafafyrirtækið var fengið til þess að gera aðra úttekt og komst að því að valin hefði verið rétt leið en búnaðurinn væri rangur.
Bæjarstjóri er nú að láta kanna hvað kostar að hanna nýjan bát.
( smásaga þessi er skáldskapur, allar líkingar við raunveruleg atvik eru án efa tilvljun)

1 Comments:

At 4:07 PM, Blogger RobbiK said...

Haha, magnað!

 

Post a Comment

<< Home