1.27.2009

fyrsta færsla ársins

Og ekki seinna vænna. Maður er orðinn svo mikill facebook kall að bloggið er á hröðu undanhaldi. Árið hefur farið vel af stað hjá okkur í Múlasíðu og enginn bilbugur á okkur. Fyrir dyrum er handboltamót á Húsavík um næstu helgi og vorum við Steinar Logi einmitt að ljúka dósasöfnun í gærkvöldi í því samhengi. Síðan er búið að ákveða vetrarfrí í Reykavík síðustu vikuna í febrúar þar sem setfnaf er tekin á að halda ótrauð áfram við það sjálfsdekur sem við stunduðum um síðustu helgi í Hnjúkaseli. Þess á milli er vinna, skóli og almennt dægurþras blandað geðshræringu heillar þjóðar sem ég nenni engan vegin að vera að delera eitthvað um hér. Til þess eru nógir aðrir.
Á mússiggsviðinu er nóg að gerast. Ég er á fullu að æfa upp prógram með hljómsveit Rúnars Eff, gospelkórinn er að fara af stað aftur eftir jólafrí og Krossbandið er að spila á laugardagskvöldið á árshátíð Oddfellow. Síðan er ég bókaðrmeð Norðurbandalaginu á eitt ball í febrúar en veit í raun ekkert hvað það er.
Stóru fréttirnar eru hins vegar klárlega þær að miðvikudaginn 11. febrúar fer ég í permanent. Jebb ... Jóhanna vinkona okkar er að nema hárskurð og ég er búinn að safna hári fyrir hana síðan í nóvember og stóri dagurinn er sem sagt að renna upp. Gera má ráð fyrir að ég verði kominn með hefðbundna Stebba Gunn klippingu mjög skömmu síðar. Þó ekki fyrr en búið verður að mynda slysið :)

1.01.2009

Gleðilegt nýtt ár

 Þakka allt, gott á árinu. Elsku farið varlega með stórhættulega flugeldana ...
Posted by Picasa

12.24.2008

Gleðileg Jól

Öllum sem hingað rata óska ég gleðilegra Jóla og farsældar á komandi ári. Þakka ánægjuleg samskipti og samspil á árinu sem er að líða, en á árinu tók ég þátt í 5 verkefnum í stúdíói með Gunna Tryggva, Sigga Ingimars, Himun og Þessum og Rúnari Eff. og er búinn að koma fram 53 sinni það sem af er árinu. Vonandi að komandi ár verði manni eins gjöfult í skapandi og skemmtilegri samvinnu við gott fólk.
Stebbi. 
Posted by Picasa

10.18.2008

Hvurt þó í ...

 Mikið þykir mér vanta upp á að ráðamenn tali við okkur almúgann eins og fólk. Væri ekki ráð að segja okkur frá því hvað er í farvatninu og tala svolítið um lausnir, í stað þess að klifa endlaust á veðurlýsingum með gerningaveður, segulstorma og fárviðrisbál eða vísa endalaust í úreltar sjósóknaraðferðir. Menn eru löngu hættir að leggjast á árar og ausa bátinn. Við viljum fá að vita hvernig staðan er. Hvað skulda bankarnir ? Hver er stefna ríkisins varðandi eignarhlut í bönkum ? Á að leggja Glitni niður ? Af hverju er Björgvin G ekki búinn að fella niður seðilgjöld eins og hann er búinn að staglast á lengi. Nú á hann bankana... Hvað ætla menn að gera varðandi verðbætur ef verðbolga fer endanlega úr böndunum.
Hvar er alþingi. Sýnið okkur nú samstöðu og gangið frá eftirlaunafrumvarpinu. Fólk allt í kring um ykkur er búið að missa sparnað sinn til efri áranna og lífeyrissjóðir þurfa að skerða lífeyrisgreiðslur. Maður gæti sprungið ! Það er enn verið að seilast lengra í því að skerða lífskjör hinna öldruðu. Fólksins sem lagði grunninn að Íslandi eins og það er í dag. Útrásin var blöff. Mennirnir sem stóðu að henni svikarar. Þeir sviku gefin loforð og ráðamenn þjóðarinnar stóðu hjá og gerðu ekkert í málinu. Af hverju má ekki draga menn til ábyrgðar ? Af hverju hafa eignir þessara manna ekki verið frystar á meðan verið er að rannsaka málið ? Hvernig stendur á því að það eru einmitt sömu mennirnir og sköpuðu útrásina og ákváðu að hundsa allar viðvaranir um offar sem nú eru að stoppa í götin. Hvenær verða menn vanhæfir á Íslandi ? Sú taug verður æ rammari inan í mér sem vill sjá blóð renna. Sjá menn dregna til ábyrgðar gerða sinna.
Síðan er þetta með Bretana. Það á náttúrulega að mæta þessum mönnum á öðru hundraðinu. Gordon Brown bjargaði pólitískum ferli sínum fyrir horn með því að hlutgera íslendinga. Við erum orsök alls slæms þessa dagana. Af hverju má ekki taka harða afstöðu gegn þessum hörðu orðum ? Össur átti eina svarið að mínu viti. Að sjálfsögðu viljum við ekki breskan her hingað til lands. Þeir líta á okkur sem hryðjuverkamenn og er ekki treystandi.
Það reynist manni erfitt að hugsa um þessa hluti án þess að reiðin blossi upp í manni. Það er erfitt að fókusera á eitthvað traust í framtíðinni þegar maður hugsa til þess að að svo stórum hluta eru enn sömu menn að stýra málum og komu okkur í þessa aðstöðu eða sátu hjá og gerðu ekkert á meðan óráðið stóð yfir.
Það sem ég horfi til er það að þrátt fyrir þetta allt er ekkert það hjá okkur hérna fyrir norðan. Við töpuðum einhverjum sparnaði en það er engin veikur, strákarnir pluma sig vel og lífið gengur sinn vanagang. VIð Ragna höldum vinnunni og þegar allt kemur til alls tókum við aldrei þátt í brjálæðinu.
Fjölskyldan er það eina sem skiptir einhverju raunverulegu máli
Svo hef ég líka tónlistina, sem er mér ótrúlega mikils virði. Ég er ákveðinn í að semja nokkur pönklög.
Posted by Picasa

10.11.2008

Blogglægðir

 Víst er um það að ég hef ekki bloggað sérlega mikið undanfarið. Nóg annað að gera svosem. Það er þó allt gott að norðan og krepputal með sínum segulstormum, gerningaveðrum, brimsköflum, utanaðkomandi áhrifum og misskilningi hefur ekki teljandi áhrif á okkur hér í Múlasíðunni enn sem komið er. Allnokkur spilamennska í pípunum og Steinar Logi á leið í samræmd próf. Úff hvað menn eru að verða fullorðnir. Kannski ég fullorðnist þá einhverntíman líka
Posted by Picasa

10.06.2008

Þrautin þyngri

  Nú gildir að herða að sér. Fiskibollur 3svar í viku ?

8.24.2008

Farskjótar

Tók þessa á símann líka. Þyrfti að eignast myndavél 
Posted by Picasa

Brúðkaup og Baugasel

Eftir ansi hreint skemmtilegt brúðkaup þeirra Nonna og Láru í gær var ákveðið að drekka sunnudagskaffið úti undir berum himni, enda gott veður í dag. VIð rendum því inn að Baugaseli í Barkárdal og sameinuðum lautarferð, leiki og berjamó. smájeppakallarnir fengu eina bunu í ánni, svona bara til að allir væru glaðir ( enda óþarfi að vera að slíta brúnni ) 
 
 
 Skemmtilegt að bregða sér af bæ og njóta náttúrunnar og alls ekki þörf á að fara langt til, á þessu dásamlega svæði.
Posted by Picasa