8.31.2005

Afmæli


Hinn stórefnilegi bassaleikari Elmar Dagur Stefánsson er eins árs í dag

8.22.2005

Menningarnótt ??

Ég er sammála því að það er náttúrulega ótrúlegur endemis aulaháttur í höfuðborgarbúum að kalla skemmtidagskrá síðasta laugardags menningarnótt ? Dagskrá sem hefst uppúr tíu árdegis og líkur á miðnætti sama dag er náttúrulega ekki næturgaman. Enda skilst manni á fréttum að nóttin hafi einkennst af ómenningu. Einn drepinn og annar hálfdrepinn.
Annars hef ég alltaf verið á móti því að rugla saman list og menningu. Það er eins og aldrei sé menning nema þegar maður er í sparifötunum. Ekki það að ég sé á móti list og því að henni sé hampað. Mér hefur bara allaft þótt gaman að hártogast um þetta.
Nú líður að lokum listasumars á Akureyri ( sem er réttnefni) og líkur því með Akureyrarvöku. Dagskráin er þéttsetin listviðburðum og meira segja á að taka bílastæðamenningu akureyringa til kostanna. Það er alveg rétt að kalla þetta vöku, þar sem dagskráin stendir fram á nótt föstudag og laugardag. Hins vegar finnst mér við ekki vera nógu dugleg að markaðsetja hátíðina í líkingu við það sem gert er á síldardögum, fiskidegi og svoleiðis. Mér finnst að setja mætti meira púður í þetta og minna í verslunarmannahelgina.

8.10.2005

Á hraðferð


Hugurinn ber þig hálfa leið

To Kef and back again

Skrapp suður til Keflavíkur á laugardaginn. Renndi suður Kjöl, svona bara til þess að hvíla mig á hrörnandi þjóðvegi 1. Slapp líka við svanga fellihýsaeigendur á leiðinni til Dalvíkur að gamsa í sig 100.000 skammta af rækjum og skel og partýþyrst hinnseginfólk á leiðinni til Reykjavíkur að drekka í sig litríka menningarflóruna. Bara ég, bíllinn minn og fjöllin mín, sem ég hef vannrækt vinskapinn við. Stoppaði reyndar lítið, en þó nóg til þess að draga andann til mín. Góð þerapía það. Í Keflavík hafði ég uppá Hjörleifi og hans fallegu fjölskyldu og dvaldi í góðu yfirlæti meðan ég beið eftir Rögnu minni, sem átti að lenda uppúr tíu. Þegar klukkan var að verða hálf tólf og ekkert stefndi í lendingu á Kef vegna veðurs fóru nú að renna tvær grímur á ferðalanginn og ég sá okkur hjónin fyrir mér. Ég í Keflavík og hún á flugvellinum á Egilstöðum, en ekkert varð nú úr dramanu. Ragna mín birtist brosandi í tollaradyrunum rétt um miðnætti og hetjan felldi karlmennskulegt tár. Verð reyndar að lýsa algerri hneikslan og allmennu svöðusári á réttlætiskenndinni yfir nýstofnuðu fjárplokki við skammtímastæðin við Leifsstöð. Megi þessir fordæmdu farisear og skattheimtumenn upplifa svenflausar nætur og varaþurk. Nú, við sváfum síðan blánóttina og héldum af stað snemma morguns norður að sameina fjölskylduna. Reyndar var hressandi gustur á okkur undir Hafnarfjallinu og Ragna hafði orð á því að Hvalfjörðurinn væri úfinn. Við héldum þó okkar striki og þegar við opnuðum fyrir hádegisfréttirnar uppi á Holtavöðuheiðinni var það helst tíðinda að ofsaveður væri á suðvesturhorninu og ekki ferðafært. Nohh. Við bara nýbúin að vera í bráðri hættu. Héldum upp á það með hádegismat í Staðarskála og lukum síðan ferðinni án teljandi vandræða. Þegar á leið fórum við að mæta fólki á hraðri leið suður eftir fiskisukkið á Dalvík og í fréttum var það helst að af 30.000 manns var hægt að finna tvo sem hafði sinnast og þurfti að skilja að. Gott fyrir fréttamenn sem voru miður sín yfir því að engum hafði runnið í skap um verslunarmannahelgina nema Árna Johnsen.

8.02.2005

Myndir



Strákarnir mínir í gönguferð.

Ragna í útlöndum

Ragna mín er suður á Englandi að læra meiri ensku. Við feðgar höfum nú sýslað sitt hvað á meðan. Setti inn nokkrar myndir. Kann ekki að setja fleiri en eina myndi í einu (auli) þannig að þetta verða nokkrar færslur. Hlakka nú samt til að fá Rögnu heim um helgina

Veiði


Steinar Logi með fyrsta alvöru fiskinn sinn.



Svo buðum við ömmu Báru með okkur í dýragarðinn á Krossum. Góður dagur það.