Tímamót
Ég lét þess getið í færslu á dögunum að ég stæði í stórræðum. Málið er það, eins og einhverjir kannast við, þá hef ég verið langt í frá ánægður með stöðu mála í vinnunni hjá mér. Því tók ég þá ákvörðun í haust að koma mér í burtu og sótti um vinnu við Hlíðarskóla. Sú tilraun mín mistókst nú einna helst fyrir það að ég hef ekki kennsluréttindi. Mistökin sem ég gerði voru þau að fara að gaspra um þetta áður en málið var í höfn en það er nú skiljanleg mistök okkar sem erum pínulítið hrifnæm. Hins vegar get ég sagt frá því í dag að ég hef sagt upp störfum hjá framkvæmdamiðstöð og mun hefja störf hjá Neyðarlínunni 112 í desember. Ég er mjög ánægður með þessu umskipti.













