2.28.2008

Dýptin er löng

Samkvæmt mogganum er nú búið að bora lengstu borholu landsins. Ég held reyndar að hún hljóti að vera lengst í heimi þar sem aðrar holur eru jafnan djúpar. Enn er Orkuveita Reykjavíkur að nema nýjar lendur ...

2.26.2008

Vindar breytinga

Það er víst orðið óhætt að segja frá því að ég er enn og aftur að skipta um vinnu. Ég er undangengið eitt og hálft ár búinn að starfa sem neyðarvörður á Neyðarlínunni. Því tímabili lýkur um mánaðarmótin mars/apríl en þá fer ég að vinna sem garðyrkjumaður hjá Kirkjugörðum Akureyrar. Bæði er það nú að ég finn mig ekki sérlega vel í innivinnu og hitt að vera mín hjá neyðarlínunni hefur gert mig sammála VG í umræðunni um einkarekstur í almannaþjónustu og verður það ekki rætt frekar á þessum vettvangi.
Ég hlakka hins vegar mikið til að komast í moldina og eyða vinnutíma mínum meðal trjánna.

2.17.2008

Ketilhúsið

 
 
Posted by Picasa
Tónleikarnir í gærkvöldi heppnuðust bara vel og gaman að spila fyrir troðfullu húsi. Ketilhúsið verður hins vegar seint talið gott hús til flutnings á rafmagnaðri tónlist en hljóðmaður þeiri GIG manna gerði nokkuð gott úr þessu öllu saman

2.16.2008

Tónleikar

  Fyrir ykkur sem gætuð slysast hingað inn þá eru tónleikar í kvöld í Ketilhúsinu kl. 20:00 Officer and gentlemen og Gospel Invation Group spila. Ég held að það sé frítt inn ...
Posted by Picasa

2.12.2008

Vetur

 
Posted by Picasa
Víst er kalt hér fyrir norðan og blása kaldir vindar yfir ísi lagða jörð. Það er vetur, jánúar nýliðinn og kaldasti tími ársins. Það sem er gleðilegt við þetta er að ég er búinn að koma sleðanum mínum heim og skipti út raflögnum í dag. Síðan verður gangsett á morgun. Við erum að fara í helgarferð í Bárðardalinn fljótlega og gott að hafa garpinn með. Annað sem gleður hjarta mitt er að sjálfstæðisflokkurinn sýnir þess merki að vera að frjósa í hel í Reykjavík og víst er að farið hefur fé betra. Meira ætla ég ekki að blogga um þetta ótrúlega bull sem tekur alla athygli frá öðrum fréttnæmum atburðum á landinu.
Að öðru leiti er gott að frétta að okkur á Múlasíðunni og lífið lötrast vanaganginn dag út og inn. Við erum búin að skipuleggja sumarfríið og stendur til að ferðast allnokkuð, bæði innanlands og utan. Meira um það síðar.