Reykjavík ó Reykjavík
Enn er ég staddur í höfuðstöðvum Neyðarlínunar. Lífið gengur voðalega mikið út á ferðalög, vinnu og það að njóta þess að vera heima þegar ég er í fríi. Fylgist glaður með handboltalandsliðinu og himinlifandi með málum Frjálslyndaflokksins. Glæsileg karlremba hjá stjórnarformanni Nýs Afls að vilja ,, hafa að minnsta kosti eina konu við borðið,, og blóm og svoleiðis til þess að gera ásýnd flokksins smekklega. Þetta og ný stefna flokksins í málefnum innflytjenda gera hann að þversögn aldrinnar og nýtt slagorð þeirra verður að líkindum ,, frjálslyndi - minn rass"
Enn ein sönnun þess að pólitík á Íslandi á enga samleið með stjórnmálum.
Annars erum við Ragna að fara til Dublin á næstunni og hlakka ég mikið til.

