(geð)sveiflukóngurinn
,, og kyrrðin drottnaði yfir okkur - þessi kyrrð, sem er í raun sál fjallanna" Gunnar Gunnarsson - Fjallkirkjan
6.28.2006
6.26.2006
Á íslensku
Ég hef stundum verið að býsnast yfir málvillum í opinberum plöggum og fjölmiðlum. Nú lít ég ekki svo á að ég sé vel máli farinn, enda myndi ég ekki gefa mig út fyrir að prófarkarlesa. Það hefur sýnt sig á þessari síðu að mér getur orðið á eins og öðrum.
Í hádeginu í dag var hins vegar borið heim til mín blað frá Elko, þar sem auglýst eru hin ýmsu rafmagnstæki. Þar var margt sem vakti forvitni mína. Til dæmis sími frá NOKIA sem Elko auglýsir sem síma á íslensku og síminn ,,segir frá hvaða taka þú ert að ýta á og segir hvað klukkan sé "
Talstöðvar með endurhlaðanlegum rafhlöðum, böndum til að láta um hálsinn og beltisklippum eru líka fáanlegar.
Einnig má kaupa hlaupafélaga fyrir 14.995,- kr. Félaganum er svona lýst. ,,GPS hlaupafélagi.GPS tæki fyrir hlaupara. Tækið reiknar út hraða, vegalengd og takt. Einnig getur merkt við farinn hring, stoppað í pásu og fleira. Í tækinu er hlaupafélagi"
á sömu síðu er að finna leiðsögutæki fyrir bíla og aukahlutapakka fyrir upptökuvélina í fríið.
Er það ?
6.17.2006
Gleðilega þjóðhátíð
Nú er hann runninn upp, 17. júní og merkilegt nokk við náðum að ljúka öllum okkar verkefnum, Eftir 90 stunda vinnuviku og skotferð á Roger Waters tónleikana verður gott að eiga frí eftir hádegi í dag og á morgun. Vonandi kemur ekkert óvænt uppá.
Það er margt sem bíður bloggunar sökum þessa mikla annríkis. Ég fór sumsé suður og heim aftur í byrjun vikunar, vann eins og rófulaus hundur, bíllinn minn bilaði, lýðræðið í landinu var fótum troðið, LA vann lítið af Grímum, Nýjar áherslur í stjórn Akureyrar eru fáar og veigalitlar (samfylking pereat!), Elmar dagur er farinn að nota tvö og þrjú orð saman til að tjá sig, við erum að fara til útlanda og ég þarf að bera á sólpallinn... já og svo á ég víst 15 ára stúdentsafmæli í dag.
Til hamingju ég og útskriftarsystkini mín.
6.09.2006
6.08.2006
Officer and gentlemen í Hollandi
Það er líklega réttast að segja að við félagarnir höfum hentst til Hollands og spilað. Fórum út á laugardagsmorgun og beint upp í bíl í tæpan klukkutíma til að komast í soundcheck í Barnefeldt hvar við skyldum spila á mánudag. Með tilheyrandi bið á flugvellum og á tónleikastað tók þetta lungan úr eftirmiðdeginum. Síðan var farið í mat og heim í íbúð sem er í Almere,litlum bæ utan við Amsterdam, til að sofa þar sem við höfðum verið á ferðinni síðan 04.15 um morguninn. Sunnudagurinn hófst með því að allir sváfu yfir sig nema Halli sem sat hinn rólegasti og borðaði morgunmat um leið og hann velti því fyrir sér með hvaða kvikindisskap hann ætti að vekja okkur. Glymur þá ekki dyrabjallan og shipoghoy við erum komni út í bíl og af stað á hraðbrautum Hollands áður en ánamaðkur gat dregið andann. Félagarnir kannski full lengi að stilla sig inn á annan tíma. Byrjuðum á því að spila í Baern og fórum síðan í langþráðan hádegismat. Síðan náðum við aðeins að horfa á Holland/Ástralía í sjónvarpinu áður en haldið var til Bussum, þar sem við spiluðum á lítilli en bráðskemmtilegri samkomu. Um sjöleitið komum við aftur til Almere og skiptum um föt áður en við fórum inn til Amsterdam, sem er um 40 mín akstur. Skoðuðum okkur um og fórum í siglingu um síkin. Skemmtilegt kvöld en því miður eru allar myndirnar sem ég tók hálfónýtar ( þarf að fá þér betri vél við tækifæri). Kynnisferðinni lauk síðan í red light district og við komum heim í íbúð um hálf eitt.
Mánudagur. Ræs fyrir átta og on the road again. Nú var farið til Barnefeldt og við spiluðum á unglingasamkomu fyrir hádegið og síðan á stórri samkomu hjá hernum eftir hádegið. Mann giskuðu á að um 1200 manns væru í salnum. Þar spiluðum við í frábærum græjum og náðum, að mínu mati, frábærum tökum á hópnum sem var mjög blandaður svona aldurslega séð( blaðamannamál).
Þriðjudagsmorguninn fór síðan í að kaupa eithvað smáræði handa þeim sem biðu heima og koma sér síðan í návígi við þau. Það er samdóma álit okkar að ferðin hafi verið góð og vonandi höfum við skilið eitthvað eftir í Hollandi, en ævintýri heimferðarinar verða okkar og ekki annara (What happens on the road says on the road)
Hljómsveitarrútan var Opel og þurfti smá tilfæringar til þess að koma öllu fyrir,mönnum, töskum og græjum og því allra mikilvægasta... bassanum !















