Vatn er án efa það besta sem við getum drukkið. Af einhverjum ástæðum sér maður yfirleitt ástæðu til þess að drekka frekar kaffi, gos eða ávaxtasafa til að hressa sig við og halda sér gangandi yfir daginn. Ég er í átaki í vinnunni að reyna að drekka frekar vatn og á vafri mínu um netið fann ég eftirfarandi saðreindir til þess að styrkja mig í trúnni.
- Jafnvel vægur ofþurrkur getur hægt á brennslukerfi líkamans um 3%. Vatn er besti megrunardrykkur sem til er.
- Ónóg neysla af vatni, er í FYRSTA SÆTI yfir það sem veldur þreytu yfir daginn.
- Niðurstöður úr könnun nokkurri gefa til kynna að drekki fólk 8-10 glös af vatni yfir daginn geti það létt á bakverkjum og liðaverkjum hjá allt að 80% þeirra sem þjást af þessum verkjum.
- Ef vatnshlutfall í líkamanum minnkar um aðeins 2% getur það valdið lélegu skammtímaminni, erfiðleikum með einfalda stærðfræði og skorti á einbeitingu við lestur á tölvuskjá eða annað prentmál.
- Að drekka 5 glös af vatni á dag dregur um 45% úr áhættu á krabbameini í þörmum auk þess sem það getur dregið allt að 79% úr áhættu á brjóstkrabba og lækkar áhættu karlmanna á blöðruhálskrabbameini um 50%.
Allt of margt af þessu á við mig til þess að maður geti horft fram hjá því.