Nokkrir góðir dagar
Það er búin að vera blíða hér fyrir norðan og lífið er ljúft. Ég náði að gera allnokkurn skurk í klippilistanum mínum og á eiginlega bara eftir að sneiða af ösp fyrir Sverri Pál, en það verður að bíða þar til ég næ í skottið á Hermundi kranabílstjóra.
Spilaði með Sigga Ingimars á lokahófi Hængsmótsins á mánudagskvöld og í Sjallanum í gær. Horfði síðan Liverpool vinna verðskuldaðan sigur í gær og Man. Utd. fara snautlega ferð til Mílanó í kvöld. Gæti ekki verið betra.
Strákarnir eru orðnir útiteknir eftir helgina og komin einhver sumahugur í mann.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home