Brú yfir boðaföllin
Jæja elsku þrautseigu lesendur. Þá er ég loks farinn að búa hSeima hjá mér aftur og lífið að byrja að komast í eðlilegt horf. Páskarnir liðu með óhóflegri byrtingu dauðasyndanna. Leti, Græðgi, Ofát og munúðarlíferni litu dagsins ljós og gott ef ekki örlaði á ágirnd. Þó létum við vera hroka, reiði og öfund, svona af því að það var hátíð.
Annars er það að frétta að við Kristján erum búnir að ganga frá Færeyjaferðinni og er brottför frá Seyðisfirði 21. júní. Síðan er útlit fyrir að við ragna förum með Giljaskóla til USA á haustdögum og í millitíðinni á að draga tjaldvagninn um gatslitna þjóðvegi landsins.
Sjóvið í Sjallanum er að renna sitt skeið og gospelkórinn fyrirhugar vortónleika um miðjan maí. Það er því að nægu að hyggja meðfram því að vera til og tilheyra fjólskyldu. Síðan reyni ég kannski að vera duglegri að blogga án þess að vera eitthvað að lofa upp í ermina á mér. Sjáum til


0 Comments:
Post a Comment
<< Home