4.28.2007

Nú er vor í lofti

,,Strákarnir okkar"
,,Strákarnir okkar",
originally uploaded by Stebbi Gunn.
og af því tilefni fórum við fjölskyldan austur í Mývatnssveit í gær. Borðuðum nesti í Námaskarði, böðuðum okkur í Jarðböðunum og litum við í Neslöndum. Mikið er nú alltaf gott að koma í Neslönd og skammarlegt hvað maður lætur líða langt á milli. Þó gæti orðið nokkur breyting á í sumar ef mér teks að verða að einhverju liði við uppbyggingu fuglasafnsins hans Geira heitins. Þar á eftir að leggja hellur í stétt og hlaða veggi. Annars er ótrúlegt að sjá hvað þetta er langt komið og sannar fyrir manni að vilji er allt sem þarf. Hef verið hugsi um þetta í dag og velti því fyrir mér hvort maður eigi ekki oftar að fylgja því sem hjartað segir manni. Skynsemin getur verið svo fjandi leiðinleg.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home