Árangur áfram ...?
Jamm, þannig fór nú það. Ekki höfum við akureyringar góða tilfinningu fyrir samstarfi sjálfstæðisflokks og samfylkingarmanna. Fuss og svei og allir svínbeigðir í duftið. Eins gott að maður hefur um annað að hugsa. Það er sannkallað kóramót um helgina. Ég verð að spila á vortónleikum karlakórs Akureyrar Geysis á laugardagskvöldið og Gospelkór Akureyrar er með lokatónleika vetrarins á sunnudagskvöld. Á mínu heimili er spennan samt mest yfir því hvort tekist hefur að smita Elmar Dag af hlaupabólu, en hún geysar nú alltumkring. Sumarfrí hjá skólafólki heimilisins er yfirvofandi og nýja yfirbreiðslan komin á tjaldvagninn. Stefnir í gott ferðasumar og ekkert stopp.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home