3.31.2008

Frá vöggu til grafar

 Þá hef ég lokið línuvörslu á 112 og farinn að dunda í garðyrkjunni aftur. Mikið er ég glaður ...
Posted by Picasa

3.26.2008

Vor í lofti ?

 Bráðum kemur betri tíð... Hversu oft hefur maður ekki hlustað á þetta og fyllst bjartsýni. Það er ekki hægt annað en halda í þessa barnatrú og horfa vígreifur fram á veg. Jafnvel þó svo bankinn hafi samkvæmt nýjasta greiðsluseðli eignast meira í húsinu mínu og hækkað vextina ofan á það á meðan markaðsvirði þess virðist á niðurleið. Jafnvel þó svo að ríkisstjórnin ætli að ganga á bak orða sinna og aðhafast ekkert í þá átt að viðhalda stöðugleikanum sem var forsenda síðustu samninga. Jafnvel þó svo verðið á sumardvölinni í Danmörku ætli upp úr öllu valdi og bíldruslan mín virðist hafa lent í peningasogandi svartholi sem þennst út hraðar en steratröllin sem skyggðu á sólina hér á Akureyri um páskana. Þá er ég glaður og bíð eftir vorinu. Ég er nefninlega að byrja í nýrri vinnu eftir helgina ...
Posted by Picasa

3.23.2008

Gleðilega Páska

Óska öllum sem hingað rata gleðilegra páska. Hefðbundinn páskadagsmorgun hjá okkur. Leitað að páskaeggjum lesnir málshættir og farið í morgunmat. Á mínu heimili borðar eiginlega engin páskaegg nema ég. Eftir hátíðarmat hjá tengdó fórum við Ragna hins vegar að endurraða húsgögnum í stofunni hjá okkur. Það var gaman.

3.22.2008

Tinni í Tíbet ?

Ég afréð fyrir margt löngu að hætta að halda úti pólitísku bloggi, en þó kemur fyrir að ekki verður orða bundist. Nú virðist sem Kínverjar ætli að komast upp með mannréttindabrot enn einu sinni án þess að alþjóðasamfélagið bregðist við að neinu marki.
Ég er þeirrar skoðunar að íslensk stjórnvöld eigi að afboða komu íslenskra íþróttamanna á komandi Ólympíuleika og sýna þar með í verki hug sinn gagnvart því sem fram fer í Tíbet
Kínversk stjórnvöld höfnuðu í dag beiðni um að koma til viðræðna við andlegan leiðtoga Tíbeta, Dalai Lama, og ítrekuðu að þau myndu mæta af fyllstu hörku þeim sem berjist gegn kínverskum yfirráðum í Tíbet. Þar með er ljóst að Kínverjar ætla sér að halda áfram ofbeldisverkum og þjóðernishreinsunum í Tíbet.
Nú er það svo að aðgerðir Kínverja í Tíbet felast ekki aðeins í því að flytja Tíbeta í fangabúðir og úr landi og milljónir Kínverja inn í Tíbet í staðinn, heldur einnig í því formi að banna Tíbetum að eiga fleiri en eitt barn, og með fósturdrápum og þvinguðum ófrjósemisaðgerðum, á meðan Kínverjarnir í Tíbet fá undanþágu frá "eins barns reglunni" í Kína og er leyft að eignast tvö börn.
Á tiltölulega stuttum tíma leiðir þetta til þess að Tíbetþjóðin þurkast út.
Fleiri ofbeldisverk gegn þjóðinni eru í gagni eins og til dæmis að banna að töluð sé tíbetska í skólum.
Með því að gera ekkert og mæta á Ólympíuleikana eru Íslendingar ekki að sýna hlutleysi, heldur taka afstöðu með því að umbera svívirðilega valdbeitingu Kínverja.

3.17.2008

Samhengi hlutanna

Þetta eru alvöru dæmi um dómskerfið á Íslandi
Héraðsdómur Suðurlands dæmir karlmann í eins árs fangelsi, þar af níu
mánuði skilorðsbundna, fyrir hrottafengna árás og nauðgun gagnvart unnustu
sinni. Þá var hann dæmdur til að greiða henni rúmar sex hundruð þúsund
krónur í miskabætur. Sama dag dæmir Hæstiréttur Hannes Hólmstein Gissurarson til að greiða Auði Laxness, ekkju Halldórs Laxness, eina milljón og fimmhundruð þúsund í
bætur fyrir brot á höfundarrétti í fyrsta bindi af ævisögu Halldórs.
Ókei. Nú skulum við staldra aðeins við. Það er auðsjáanlega eitthvað bogið við það að ekkja nóbelskáldsins hafi borið meiri skaða af því að Hannes hafi kóperað upp úr dagbókum mannsins hennar en kona sem er barin í klessu og nauðgað af sambýlismanni sínum.
Nú er ég ekki að segja að það sé í lagi að eigna sér verk annara, en dómar í ofbeldis og kynferðisbrotamálum eru náttúrulega ósegjanlega lélegur brandari þegar þeir eru settir í samhengi.

3.16.2008

Goðamót

 
 Helgin var góð. Ég var liðstjóri hjá Steinari Loga og félögum á Goðamóti og var mikið fjör. Það eru sennilega nokkur líkindi með því að vera liðstjóri hjá 9 ára þórsurum og að þjálfa 3 deildar lið í íshokki. Adrenalínstigið hátt og ekki rúm fyrir mikla bið án þess að átök brjótist út innan liðsins og annar hver maður tannlaus. Þess vegna er reynt að halda mönnum við efnið með stífri dagskrá. Það eru því þreyttir en hamingjusamir feðgar sem eru að búa sig til svefns í þessum skrifuðum orðum. Þetta er gríðarlega gefandi og skemmtilegt. Páskafríð er hafið hjá fjölskyldunni og því fá allir að sofa út í fyrramálið, nema ég að sjálfsögðu sem sest á eina af mínum síðustu vöktum við að halda tórunni í þjóðinni. Ég er að vinna meira og minna alla páskana, en þó er von til þess að maður komist eitthvað á skíði. Það eru því dýrðartímar framundan... eins og alltaf, er það ekki ?
Posted by Picasa

3.12.2008

Rakel skorar

Það er svo sem ekkert nýtt að Rakel Hönnudóttir, þórsari skori mark. En vel við hæfi að segja frá því hér að hún skoraði sitt fyrsta A-landsliðsmark snemma í morgun að okkar tíma. Glæsilegt það og innilegar hamingjuóskir til hennar úti í Porúgal frá Steinari Loga vini hennar og reyndar okkur hinum í fjölskyldunni líka. Vel gert !!

Oft var nauðsyn en nú er óþarfi

Það segir kannski sitt að þegar maður fer yfir mbl.is til að leita sér að bloggefni er ekki margt að gerast. kannski sem betur fer. Strákarnir mínir hafa tekið síðasta hálfan mánuðinn í flensuna þannig að daglegt líf hefur farið í vinnu og veikindi, varla að maður hafi lesið blöðin. En nú er ég að fara í helgarfrí og jafnvel að enginn verið veikur. Fjölskyldan að fara í páskafrí á meðan ég nota hátíðina til að telja niður síðustu vatkirnar á neyðarlínunni. Ég hlakka mikið til að komast út í náttúruna.
Annars er maður eins og opin gátt yfir vöxtum, verðbólgu, gengislækkun, eldsneytisverði og því að ekkert af þessu virðist ætla að bíta á sportjeppavædda útrásarmenn ísland sem halda ótrauðir áfram að kafsigla skútunni í trássi við blikkandi aðvörunarljós bæði innlendra og erlendra greiningarstöðva. Eins gott að maður á ekki peninga og tapar ekki bunka af milljónum eins og aumingja Bubbi, sem fær útrás fyrir missinn með því að standa í barnalegum ritdeilum um það hvort hann hafi sögulegt mikilvægi eða ekki. Gott að vera bara peð og vera aðeins mikilvægur þeim sem standa manni næst.

3.07.2008

Olía á eldinn

Ég veit ekki með ykkur en þessar gengdarlausu eldsneytisverðshækkanir ganga svoleiðis aftur og fram af manni ( og eiginlega mann fram af manni)að maður fær bara aulahroll þegar kemur að því að taka bensín á bílinn.
Svar ríkisstjórnarinna um að hátt eldsneytisverð haldi aftur af mengun er eins og að segja að hátt matarverð lækni offitu. Asnar.

3.06.2008

Ferðafélagi kvaddur

  Jamm þá er ég búinn að selja sleðann minn og fimm ára farsælli samveru lokið.
Það er þá kannski von til þess að maður geri eitthvað úr hugmyndunum um að skíða á fjöllum ...
Posted by Picasa