Mr. Blue
Halli Gulli
Guito
Stebbi
TiagoÞað var geggjað að spila á blúshátíðinni og frábært að við skyldum smella svona saman. Það er náttúrulega bara vandræðalegt hvað Halli Gulli er góður á trommur og brassarnir eru snillingar hvor á sinn hátt. Við spiluðum bæði hátt og hratt og okkur var bara vel tekið og stefnan tekin á áframhaldandi samstarf. Reyndar á nú eftir að finna almennilegt nafn á hljómsveitina, en við ætlum að koma einhverju í verk með haustinu og halda tónleika þar sem við munum flytja eitthvað af lögunum hans Guito, en sá á nú nóg af þeim. Fyrst fara menn nú samt í sumarfrí og anda með nefinu.



