Bangsafælni
Datt í hug að segja ykkur frá helstu aðgerðaráætlun ef þið mætið ísbirni. Í fyrsta lagi ættu menn alltaf að ferðast tveir og tveir saman á þessum síðustu og verstu. Ekki vera með skotvopn nema þið séuð þeim mun þjálfaðari í meðferð þeirra (sérsveitarmenn eða svoleiðis) Það er miklu áhrifameira að hafa hamar meðferðis. Þegar bjarnarins verður vart og ljóst er að hann ætlar að gera sér mat úr þér og ferðafélaga þínum er eina ráðið að draga fram hamarinn og nota hann til að mölva hnéskelina á viðkomandi og vona að það tefji björninn nógu lengi til að þú komist undan. Annars er allt gott í Múlasíðu, grasið sprettur og börnin stækka. Við erum farin að hugsa til Danmerkurferðarinnar með spenningi.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home