4.27.2008

Og enn snýst hún

 Sunnudagskvöld og ég nýt þess að vera í helgarfríi. Það var letidagur í gær með smávægilegri tiltekt hér heima, sándtékki og pizzu og síðan sýning á ,,Gráu hárin heilla" þegar sýningunni lauk var ljóst að forfoll yrðu á hljómsveitinni sem átti að spila ballið þannig að við Halli, Haukur og Heimir stukkum á svið og spiluðum sveitt ball, meira af tilþrifum en gæðum, óæft og fínt. Þetta var fyrst og fremst gaman og mikið adrenalín kikk að telja í hvert lagið af öðru án þess að muna mikið meira um það en nafnið. Kom sér vel að við Halli og Heimir vorum að spila ball í íþróttahöllinni á föstudagskvöldið, þá að vísu með Valla á trommur. Í dag var síðan fjólskyldudagur með bröns í Móasíðu, hópferð í keilu og ís á eftir og síðan aftur í Móasíðu í kvöldmat. Núna er ég semsagt að bræða það með mér hvort ég eigi að nenna í bíó á Rolling Stones myndina klukkan 22. Lítið annað að gerast. Gott.
Posted by Picasa

0 Comments:

Post a Comment

<< Home