6.30.2008

Mr. Blue

 Halli Gulli
 Guito
 Stebbi
 Tiago
Það var geggjað að spila á blúshátíðinni og frábært að við skyldum smella svona saman. Það er náttúrulega bara vandræðalegt hvað Halli Gulli er góður á trommur og brassarnir eru snillingar hvor á sinn hátt. Við spiluðum bæði hátt og hratt og okkur var bara vel tekið og stefnan tekin á áframhaldandi samstarf. Reyndar á nú eftir að finna almennilegt nafn á hljómsveitina, en við ætlum að koma einhverju í verk með haustinu og halda tónleika þar sem við munum flytja eitthvað af lögunum hans Guito, en sá á nú nóg af þeim. Fyrst fara menn nú samt í sumarfrí og anda með nefinu.
Posted by Picasa

1 Comments:

At 4:35 PM, Blogger RobbiK said...

ég rakst einmitt á gamla upptökur með hljómsveitinni minni þegar ég var í menntaskólanum. Mig klæjaði bara í fingurnar við að hlusta á þetta og nú dugir ekkert annað en að bursta rykið af puttunum þegar maður flytur loks aftur til Akureyrar - og byrja að spila aftur :)

 

Post a Comment

<< Home