11.21.2006

Spilerí framundan

Það er allnokkur spilamennska framundan. Ég verð að spila á gospeltónleikum annaðkvöld, til styrktar útvarpstöðinni Lindinni. Síðan er showið í Sjallanum á föstudagskvöld og tónleikar til styrktar mæðrastyrksnefnd á sunnudaginn kl 16:00 þar verð ég að spila undir hjá kór Akureyrarkirkju, kvennakór Akureyrar og barnakór Glerárkirkju. Ég komst að því áðan að Snorri Guðvarðar verður í hljómsveitinni og létti mér nokkuð við það, þar sem aðeins ein æfing verður hjá hljómsveitinni, án kóranna. (kl. 09:30 á laugardagsmorgun) Annars eru í hljómsveitinni Eyþór Ingi Jónsson, organisti og Halli Gulli trommari. Arnór Brynjar Vilbergsson stjórnar herlegheitunum. Helginni líkur síðan með æðruleysismessu á sunnudagskvöld kl 20:30. Síðan er ég búinn að lofa sjálfum mér því að komast á skíði með Steinari Loga á laugardaginn.

11.20.2006

Helgin

Helgin var ljúf eins og svo oft áður. Eftir að hafa eytt laugardeginum í síðustu stórhreingerningu fyrir jólaþrif fórum við Ragna í teiti þar sem saman komu félagar sem ekki hafa hist lengi. Það var mjög gaman. Sunnudagurinn fór síðan í hangs meira og minna þar sem ég var að bíða eftir því að handboltaleikurinn við HK hæfist, en ég var búinn að lofa því að vinna á leiknum. Hins vegar notaði ég tímann vel og kom sleðanum mínum í form eftir sumardvalann og naut þar dyggrar aðstoðar.
 
Þess má kannski geta að þegar leikurinn hófst kl 20:45 (átti að vera kl 16:00) var móðurinn úr Akureyrarliðinu og við töpuðum leiknum. Það voru þreyttir og svekktir feðgar sem fóru heim klukkan langt gengin í ellefu og Logi minn var þungur í morgun. Posted by Picasa

11.17.2006

Flýtur vatn ?

Þessi mynd var tekin af Steinari Loga á sundnámskeiði.
 
Einhventíman fékk ég þá hugmynd að búa til seríu af portrettmyndum af frægu fólki á kafi í vatni. Kannski það verði að veruleika í fyllingu tímans. Posted by Picasa

11.16.2006

Rafræn fjölskylda

Bætti við tengli á Axel Stefáns og Önnu Brynju í Noregi. Það er ótrúlega gaman að hafa aðgang að nýjustu tíðindum hjá fjölskyldunni sinni.

11.15.2006

Strákar verða strákar

Ég er að taka til hjá mér í vinnunni, eins og fram hefur komið. Var að koma myndum á diska og ákvað að deila þessum með ykkur. Við vorum í bústað fyrir hálfum mánuði og við karlarnir fórum út að sækja eldivið. Ekki höfðum við verið lengi við staflann þegar timbrið umbreyttist fyrir töfra æskunar í sverð og byssur og eldiviðarferðin varð að StarWars leik og endaði í byssusmíði í geymslunni. Þetta var skemmtilegur sunnudagsmorgun
 
  Posted by Picasa

11.14.2006

Nýir tímar

Datt í hug að breyta útliti síðunnar. Ég var reyndar búinn að gleyma því hvað það er mikið vesen. Gott á mig. Þetta kemur allt saman. það vantar hlekki á helstu síður og það eru engar myndir inni á myndasíðunni. verið róleg.

Jólin koma, jólin koma

Já vinir mínir víst er um það. Það verður kominn annar í Jólum áður en snigill hefur dregið andann. Ég er byrjaður að undirbúa brottflutning úr vinnunni og hóf tiltekt á skrifstofunni minni í gær. Mikil annars heims undur af drasli sem manni hefur áskotnast á þessum tæpu fimm árum sem ég er búinn að vera hér. Sumt fer beint í tunnuna, annað fer í flokk sem ég kalla ,,lesa og henda", mestmegnis efni sem ég hef prentað út til þess að lesa en ekki gert. Síðan er flokkurinn ,, geyma" Ég viðhef mjög vísindaleg vinnubrögð þar að lútandi. Fyrir utan bækur og persónulega muni má ég bara fylla einn kassa af ,,geyma"dóti. Þetta leiðir til þess að flokkurinn ,, lesa og henda" er að ná algerum yfirburðum í umfangi og ekki ólíklegt að hann verði ritskoðaður aftur.
Á meðan á öllu þessu stendur er ég að hlusta á plötuna Dubious intentions með Shadow parade. Góð plata það, farið í plötubúð og kaupið hana strax!!
Af öðrum vettvangi er það helst að við gerðum prufu af jólabakstri um helgina og lofaði útkoman góðu. Akureyri er komin á kaf í snjó og aldrei að vita nema maður bregði undir sig skíðunum um helgina. Á skíðum skemmti ég mér tralllalala ...