Helgin
Helgin var ljúf eins og svo oft áður. Eftir að hafa eytt laugardeginum í síðustu stórhreingerningu fyrir jólaþrif fórum við Ragna í teiti þar sem saman komu félagar sem ekki hafa hist lengi. Það var mjög gaman. Sunnudagurinn fór síðan í hangs meira og minna þar sem ég var að bíða eftir því að handboltaleikurinn við HK hæfist, en ég var búinn að lofa því að vinna á leiknum. Hins vegar notaði ég tímann vel og kom sleðanum mínum í form eftir sumardvalann og naut þar dyggrar aðstoðar.
Þess má kannski geta að þegar leikurinn hófst kl 20:45 (átti að vera kl 16:00) var móðurinn úr Akureyrarliðinu og við töpuðum leiknum. Það voru þreyttir og svekktir feðgar sem fóru heim klukkan langt gengin í ellefu og Logi minn var þungur í morgun.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home