10.31.2006

Tímamót

Ég lét þess getið í færslu á dögunum að ég stæði í stórræðum. Málið er það, eins og einhverjir kannast við, þá hef ég verið langt í frá ánægður með stöðu mála í vinnunni hjá mér. Því tók ég þá ákvörðun í haust að koma mér í burtu og sótti um vinnu við Hlíðarskóla. Sú tilraun mín mistókst nú einna helst fyrir það að ég hef ekki kennsluréttindi. Mistökin sem ég gerði voru þau að fara að gaspra um þetta áður en málið var í höfn en það er nú skiljanleg mistök okkar sem erum pínulítið hrifnæm. Hins vegar get ég sagt frá því í dag að ég hef sagt upp störfum hjá framkvæmdamiðstöð og mun hefja störf hjá Neyðarlínunni 112 í desember. Ég er mjög ánægður með þessu umskipti.

2 Comments:

At 8:57 PM, Anonymous Anonymous said...

Hæ hæ til hamingju með nýja starfið Stebbi. Dagarnir fyrir flutning ruku burt frá okkur mæðginum og svo rukum við úr landi nánast án þess að kveðja kóng eða prest. En við höfum svo oft verið að skuttlast til útlanda að okkur fannst þetta nú ekki vera mikið mál þó svo ferðin verði heldur lengir í þetta sinn. En allt gott hjá okkur, skólinn "leik"-skólin eins og MO myndi nú kannski orða það er kominn á gott strik og allir sáttir. Kveðja Anna Brynja

 
At 8:59 PM, Anonymous Anonymous said...

Bara bæta við bloggsíðunni hans Axels axel-stef.blog.is

 

Post a Comment

<< Home