Engar afsakanir
Ég hef nú lítið uppfært undanfarið og helgast það frekast af annríki. Nú er ekki nema tæpur hálfur mánuður í Ingimarsshowið og því ljóst að mikið verður æft þessa og næstu viku ef vel á að vera. Við erum búin að renna í um 60 lög í það heila og nú hefst vinnan við að negla þetta í höfuðið á sér þannig að maður þurfi ekki að spila af blaði eins og einhver hámenntaður tónlistarmaður. Helena Eyjólfs hefur reynst okkur ótrúlegur haukur í horni, hún kann öll lög í heimi og hefur flýtt alveg ótrúlega fyrir okkur strákunum við að læra bæði hljóma og raddir. Ég ætla nú bara að fullyrða hér og nú að þetta verður vel heppnuð dagskrá og ef Sjallinn stendur sig í umgjörðinni þá á fólk von á grand kvöldi.
Annars er nú lítið að frétta. Maður undrar sig á stjórnvöldum sem hlera í stað þess að hlusta, drekkja náttúrunni, lýsa stuðningi við drápsferðir bandaríkjanna og ganga glaðbeitt undir hælinn á þeim. Samningurinn um brotthvarf varnarliðsins er svohljóðandi í stuttu máli.
USA ,, Bless, við erum farnir"
Ísland ,, ok. bæ "
Ragna mín fer af stað til útlanda á morgun og við strákarnir verðum einir heim fram á sunnudag. þess er að vænta að glatt verði á hjalla.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home