Ég varð
ótrúlega hissa þegar ég fór á fætur í bítið á sunnudagsmorguninn og aðalfyrirsögnin á textavarpinu var...
HEIMILISOFBELDI: NÝJAR VERKLAGSREGLUR
,, og kyrrðin drottnaði yfir okkur - þessi kyrrð, sem er í raun sál fjallanna" Gunnar Gunnarsson - Fjallkirkjan
ótrúlega hissa þegar ég fór á fætur í bítið á sunnudagsmorguninn og aðalfyrirsögnin á textavarpinu var...
hans Ómars, sem er svona netleikur, hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni um námsefni í neytendamálum sem Norræna ráðherranefndin efndi til. Ómar fékk í verðlaun eitthvað í kringum eina milljón og er það ekki of mikið fyrir hans miklu snilligáfu.
Ég lofaði sjálfum mér því fyrir nokkru síðan að minnka sjónvarpsglápið, enda sjónvarp einhver mesti óvinur frjórrar hugsunar. En það er eins og með svo margt annað sem maður ætlar sér það rennur út á hina víðáttumikklu þekju um leið og slakað er á. Ég hef sjálfsagt líka ákveðið einhverntíman að vera ekki að fjargviðrast hér um sjónvarpið en skíttlabenhaben.
Nafnið mitt er víst komið úr grísku og þýðir kóróna. Alltaf batnar það, ekki bara að ég sé að verða holgóma af leiðindum eftir daglangar fundarsetur, heldur heitir maður einhverju kynvilltu prinsessunafni í þokkabót.
