Sjónvarpið
Ég lofaði sjálfum mér því fyrir nokkru síðan að minnka sjónvarpsglápið, enda sjónvarp einhver mesti óvinur frjórrar hugsunar. En það er eins og með svo margt annað sem maður ætlar sér það rennur út á hina víðáttumikklu þekju um leið og slakað er á. Ég hef sjálfsagt líka ákveðið einhverntíman að vera ekki að fjargviðrast hér um sjónvarpið en skíttlabenhaben.
Ég er náttúrulega eins og allir óendanlega sorgmæddur yfir því að Skjár einn skuli vera að endurgera ameríska rauntímaþætti. Rauntímaþættir eru illa unnið sjónvarpsefni með ómenntuðum leikurum að leika sjálfa sig í óraunverulegum aðstæðum hverskonar. Keyrir náttúrulega um þverbak þegar ekki er haft fyrir því að hafa íslenskt heiti á metnaðarleysinu.
Menn og konur keppa á ýmsum vígstöðvum í úrkynjun, ómenningu og hóreríi í þeirri von að hreppa ást og hamingju til dauðadags, eða í það minnsta smá pening og ferð til útlanda. Á sama tíma á sömu stöð er Sirrý að gera spjallþætti um siðferðislega hnignun ungs fólks og þá hörmung að afbakaðar kynlífsathafnir skuli vera snar þáttur í skemmtannalífi og jafnvel lykillinn að félagslegri viðurkenningu.
Stóru stöðvarnar keppast um skipta á milli sín kynþokkafullu fólki í þeirri veiku von að gera megi fréttaskýringar að spennandi sjónvarpsefni. Það hefur hins vegar engin breyting orðið á efnistökum, Kastljósið er enn jafn hrútleiðinlegt og Ísland í dag jafn ógeðslega yfirborðslegt og óáreiðanlegt í efnistökum sínum og stórar auglýsingar og kynningarefni á herlegheitunum innantómt skrum og jaðra við lygi.
Eins má fara ófögrum orðum um veðurfréttir. Veðurfréttir eiga að vera til gagns og eru snar þáttur í almannaheill og öryggi borgaranna. Það er því ábyrgðarhlutur að gera veðurfréttir að sjónvarpsefni þar sem umbúðir yfirgnæfa innihaldið.
Ég ætla að sleppa því að segja frá því hvað fasteignaþátturinn á Skjá einum fer svo mikið í taugarnar á mér að mig langar mest til að stinga vísifingri vinstri handar inn í gegnum augað á mér, inn í heila og hræra hraustlega.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home