9.05.2005

Eipsjitt

Einverntíman þegar við Tryggvi bróðir stóðum í ritdeilum á netinu ( man nú ekki alveg hvað við vorum að rífast um, sem er merki um að mér hafi ekki þótt það mikilvægt því ég er maður langrækinn) nefndi hann að ég hefði ,,eipshittað" algerlega. Ég man að mér þótti talað niður til mín og hálf þótti við hann að vera að gera sig breiðan með útlensku yfirlæti. ( fyrir utan þá staðreynd að ég vissi á þeim tíma ekki hvað það var að eipshitta og Tryggvi þurfti að segja mér það) Síðan jafnaði þessi deila sig og ég hef nú tiltölulega nýverið uppgötvað nauðsyn þess að eipshitta reglulega ti þess að halda sönsum. Sögnin að eipshitta þýðir að fara fram úr sjálfum sér í æsingi og missi sjónar á rökum í umræðuefninu og mun vera dregin af ensaka orðinu apeshit. Því miður hef ég ekki verið nógu duglegur að gera það hér á blogginu mínu og oftar en ekki hefur Ragna mín orðið að gjalda fyrir það þegar hugsanatengsl og brengl riðst útúr mér í þessum síðasta svefndrukkna andardrætti hvers dags, þegar maður ætti að vera að mæra spúsu sína og hafa ástarjátningar á reiðum höndum. Nei nei, þá er ég að básúna skoðanir mínar á hinum aðskiljanlegustu hlutum allt frá því hvað það er erfitt að vera geðveikur, ömurlegt að hafa ekki efni á því að kaupa sér öll hljóðfærin sem mig langar í, asnalegt að bandaríkjamenn hafi komist upp með að falsa tungllendinguna, vitlaust að halda því fram að sveitastjórnarmál eigi eitthvað skylt við pólitík, Skrítið að prump skuli safnast fyrir í líkamanum og bíða inni í manni þangað til maður er kominn uppí á kvöldin, merkilegt að bandaríkjamenn skuli ekki virða skoðanir alþjóðasamfélagsins um verndun umhverfisins, ásamt spurningum um tilvist Guðs, réttlæti samgöngustefnunar, skynsemina í sameiningu sveitarfélaga við Eyjafjörð, hvort besta skyr í heimi sé búið til á Akureyri og hvort eldri sonur okkar höndli álagið sem fylgir því að byrja í skóla.
Ég hef nú í krafti staðfestu minnar (?????) ákveðið að hætta að krefja sofandi eiginkonu mína um svör við áleitnum álitamálum og leita þeirra hér í einræðu minni. Til að draga hring á fingur þessa ásetnings sítera ég hér í höfuðskád íslenskra stórfyrirtækja: ,, Ragna ég elska þig "

1 Comments:

At 9:16 AM, Anonymous Anonymous said...

Stefán! Það er kjaftæði að prump safnist fyrir í búkskrípinu fram á kvöld! En allt hitt er gott - eða slæmt... Það er að minnsta kosti gáfulegt - eða ekki...

Kveðjur kæri bróðir í trúnni,

Svavar hinn sóðalegi eins og við í hljómsveitinni köllum'ann

 

Post a Comment

<< Home