Alltí Gúddí
Ég er ekkert sérlega vel máli farinn maður. Orðheppinn á stundum í það mesta. Ég hef samt gaman af umræðum og umfjöllun um íslenskt mál. Þar eymir enn af líflegum umræðum í máladeildarbekkjum MA. Í gær voru skilin eftir skilaboð í talhólfinu mínu. Þar kom fram að viðkomandi aðili væri búinn að reyna ítreka að ,, ná á mér" og ,,vildi nauðsynlega" spjalla við mig. ,,Gemsaðu á mig þegar þú getur. Allt í gúddí"
Þú verður að fyrirgefa ef einhver töf verður á því að ég gemsi á þig. Ég hef bara ekki minnstu hugmynd um það hvað það er.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home