9.07.2005

Þróunaraðstoð ??

Ekki dettur mér í hug að gefa penninga til aðstoðar bandaríkjamönnum. Þó svo ég finni sárt til með þeim sem lentu í Katrínu og hafa týnt öllu sínu, veraldlegu jafnt sem ástvinum. Mér finnst bara svo yfirgengilegt að þessi ríkasta þjóð í heimi (langríkasta by the way) geti ekki séð sóma sinn í því að bjarga þessu fólki. Það tæki herinn þeirra ekki nema dagpart að rýma svæðið ef eitthvað er að marka framgang hans á erlendri grundu og lýsir kannski best hugsanagangi þarlendra stjórnvalda að einfaldast sé bara að skjóta þá sem í örvæntingu sinni gerast brotlegir við lög til þess að halda lífi í sér og sínum.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home