3.21.2005

Evrópusýn

Það er svo margt skrýtið í kýrhausnum og ég hef velt því fyrir mér í kjölfar fjaðrafoksins í kringum nýjan fréttastjóra útvarps hvort ekki hafi verið ranglega staðið að ráðningu lagahöfunda vegna framlags Íslands í Eurovision keppnina á þessu ári. Í stað þess að fara hina rökréttu leið og gera landsmönnum kleyft að keppa um og kjósa framalag til þessara miklu landkynningar er farin sú leið að ráða án dóms þá Þorvald Bjarna og Vigni Snæ til þess að semja lag upp í Selmu Björns. Var þá ekki eðlilegt að útkoman yrði einhvarskonar B-hlið á ,,All out of luck" ? Lagið er svosem ekkert betra eða verra en annað popp og vissulega er Selma góð söngkona - en aftur ? Ætli danssprundin verði færð í frakkana af strákunum sem kaffærðu lagið síðast þegar Selma fór ? Ja, maður spyr sig.
Var fullreynt með Gleðibankann ?
Annað í sama streng, þá er Evróvision náttúrulega langt frá því að vera íslenskun á orðinu Eurovision. ( á ekki bara að nota hið liðþjála heiti Sönglagakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva ?)

Svínsleg helgi

Ég fór sennilega langleiðina með að borða heilan grís um helgina. Mamma hélt upp á það á laugardagskvöldið að 30 ár eru síðan við fluttum í Tjarnarlundinn og var reykt svín á borðum. Á sunnudaginn fórum við síðan í afmælisveislu með tilheyrandi kökuofáti og síðan í páskamat til tengdó um kvöldið, til þess að borða meira svín. Niðurstaða: nú sit ég með móral og magaverk og vona að Ragna mín verði bara með skyr og brauð í páskamatinn.

3.20.2005

Annað

... sem mér datt í hug að segja ykkur frá er að nú er ég farinn að æfa mig að spila með svokölluðum funk fingers á bassann minn og hlakka mikið til endurkomu TDH með vorinu, hvar ég mun heimsfrumsýna funkfingersbassaleik minn.

3.08.2005

Lasleiki

Það var mat lækna í haust að ég hefði enn og aftur hrapað niður í geðhvörf og óyndi. Sjúkdóm sem grasserað hefur í sál minni í 12 ár. Eins og menn geta gert sér í hugarlund er það ekkert einfalt að fást við og viðurkenna fyrir sjálfum sér og öðrum að maður sé með ólæknandi geðsjúkdóm, en eins og svo oft áður hefur komið í ljós að sjúkdómur minn var vitlaust greindur því ég uppgötvaði nú í morgunsárið að ég mun vera með stökkbreytt afbrigði fuglaflensunar, svokallaða furðufuglaflensu. Sem reyndar er líka ólæknandi ...

Söngur dýranna

Það góða við að vera hestur er að maður þarf ekki mikið til að vera ánægður. Ef hestur fær að vera úti í sómasamlegri girðingu, með útsýni norður í Kaldbak og hálfa heyrúllu getur hann staðið tímunum saman og horft út í loftið, nagandi hey og án þess a hreyfa sig teljandi mikið, utan að klóra sér stöku sinnum með girðingunni. Það er vel á sig leggjandi að skondrast með þessa mannvitleysingja á bakinu annað slagið til þess að fá að vera í ró og næði með hugsanir sínar úti í birtingunni þegar fuglarnir eru að vakna og rauðeygður dagurinn kíkir yfir fjallstoppana. Það er þá sem hestarnir kveða sínar Liljur og tilfinningalíf þeirra rís sem hæst.
Það er eitthvað við það að vera hestur sem heillar mig.

3.07.2005

Kominn á kreik á ný

Jebb, vinir mínir. Þá er kominn tími til að losa útfrymi hugans á þennan salernispappír netsins. Ef ég þekki sjálfan mig rétt fara margir dagar í að bölsótast við að gera alls konar hlekki og stillingar virkar, sem síðan hefur ekkert að segja þar sem engin les þetta nöldur hvort eð er. Gott á mig.
Lifið heil
SGunn