8.31.2007

Afmælishlunkurinn

BIO Shocker
BIO Shocker,
originally uploaded by Stebbi Gunn.
Já Elmar Dagur er þriggja ára í dag. Mikil hátíð í vændum og blöðrudagur á Síðuseli.

8.23.2007

Vísitölur

Hvað eiga Eistland, Liechtenstein, Andorra, Lúxemborg, Færeyjar, San Marínó og Svartfjallaland sameiginlegt ?
Jú samkvæmt fótboltavísitölu eru þetta einu þjóðirnar í Evrópu sem eru slakari í fótbolta en við.
Þarf að segja meira um það ?

8.18.2007

Kominn í gang

Jamm. Búinn að taka fram bassann á ný eftir nærri fimm vikna hlé. Það hefur margt verið að gerast hjá okkur. Við Logi fórum á fótboltamót, Ragna á namskeið til Edinborgar og haustið er komið með berjum og kvöldhúmi. Ég hef lítin tíma haft til bloggunar, en set inn myndir og svoleiðis fljótlega. Þolinmæðin verður að vera þeirra sem lesa þessa síðu um þessar mundir