5.30.2006

Forgangsröðun

Ég verð að lýsa ákveðnum vonbrigðum með Samfylkinguna. Ég ótttast að beinið hafi verið skoið úr nefinu á Hermanni og að við sjáum minni umskipti á stefnu bæjarins en kosningaúrslit gáfu vonir um.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur undanfarin ár markvist unnið að því að koma sér upp embættismannakerfi sem gerir allar framfarir ómögulegar og þæfir allar umleitanir um þróun til dauða. Þetta leiðir til fagurra skipurita, súlurita og stefnumörkunarveggmynda en gerir lífið í bænum andlaust og murkar úr því frjóa hugsun hægt og hægt.
Nú er til að mynda ekki hægt að mynda meirihluta í bæjarstjórn af því að bæjarstjórinn okkar er að veiða horaðan vorsilung. Þarf að segja meira.

5.27.2006

Enn einn merkisdagurinn

Í dag gerist það. Í dag fá sjálfstæðismenn blauta tusku í andlitið. Í dag mun óhreinum og illa sofnum framóknarmönnum hefnast fyrir svikinn málstað. Í dag mun réttlætið rísa upp úr öskustónni og í blindni sinni höggva mann og annan af stöllum sínum og ryðja leiðina fyrir réttláta og heiðarlega sveitarstjórnarmenn hvar sem þá er að finna.
Í dag kjósum við
Í dag kemur í ljós hvort við erum víkingar eða þrælar.

5.25.2006

Uppstigningardagur

er kristinn hátiðisdagur, en 25. maí er líka alþjóðlegur merkisdagur.

,,A towel, it says, is about the most massively useful thing an interstellar hitch hiker can have. Partly it has great practical
value - you can wrap it around you for warmth as you bound across the cold moons of Jaglan Beta; you can lie on it on the brilliant marble-sanded beaches of Santraginus V, inhaling the heady sea vapours; you can sleep under it beneath the stars which shine so redly on the desert world of Kakrafoon; use it to sail a mini raft down the slow heavy river Moth; wet it for use in hand-to-hand-combat; wrap it round your head to ward off noxious fumes or to avoid the gaze of the Ravenous Bugblatter Beast of Traal (a mindboggingly stupid animal, it assumes that if you can't see it, it can't see you - daft as a bush, but very ravenous); you can wave your towel in emergencies as a distress signal, and of course dry yourself off with it if it still seems to be clean enough.

More importantly, a towel has immense psychological value. For some reason, if a strag (strag: non-hitch hiker) discovers that a hitch hiker has his towel with him, he will automatically assume that he is also in possession of a toothbrush, face flannel, soap, tin of biscuits, flask, compass, map, ball of string, gnat spray, wet weather gear, space suit etc., etc. Furthermore, the strag will then happily lend the hitch hiker any of these or a dozen other items that the hitch hiker might accidentally have "lost". What the strag will think is that any man who can hitch the length and breadth of the galaxy, rough it, slum it, struggle against terrible odds, win through, and still knows where his towel is is clearly a man to be reckoned with." (hichhiker´s guide to the galaxy)

Í dag minnumst við Douglas Adams. Í dag er alþjólegur dagur handklæðisins.

5.15.2006

Mæðradagurinn

Já mæðradagurinn var í gær og ég var staðráðinn í því að bjóða Rögnu minni út að borða. Hins vegar er það svo hér í sveitinni að öll betri veitingahús hafa lokað á sunnudögum, af því að þá eiga menn að vera heima að borða afganga liðinnar viku að því er best verður að komist. Við enduðum þess vegna á Bautanum og fengum okkur mat( sem er allt annað en að fara út að borða). Hins vegar lagði ég nýjar línur í mæðradagsgjöfum þegar við feðgar gáfum húsmóðurinni snúrustaur í tilefni dagsins.
Tónleikar helgarinnar tókust með ágætum og nú liggur fyrir að æfa fyrir ferðina til Hollands. Ég er spenntur.

5.11.2006

Bassafimi

Stuart Hamm er ansi lunkinn bassaleikari.

5.09.2006

Gisp, hulk, klirrrr, rastle

Eða eins og það var skrifað í gamla daga þegar Andrés önd lenti í árekstri.
Helgin var svo sannarlega fyrsta sumarhelgi sumarsins ( frasi beint af Bylgjunni) og ég var að vinna fram eftir laugardegi. Síðan fórum við á vorhátíð Síðuskóla með Steinari Loga. Þar var að vonum líf og fjör. Heimsótti síðan Kristínu Sigfúsar, vinkonu mína og habbði klippurnar með, drakk rifsberjasaft og borðaði norskan sauðaost. Fínt.
Á sunnudagsmorguninn snyrti ég runnana ég fyrir tengdó og síðan var langur hádegismatartími á pallinum í steikjandi sólinni, farið í hjóltúr með strákana og síðan í heita pottinn. Ohh maður er eitthvað svo mainstream.
Vikan einkennist af tónleikum. Verð að spila á Húsavík annað kvöld, með Karlakór Akureyrar Geysi í Glerárkirkju á föstudagskvöldið og á Gospeltónleikum á laugardagskvöldið. Já og svo var ég að kaupa mér miða á Roger Waters !!

5.05.2006

Enn einn föstudagurinn

Jebb og ég á leiðinni í frí eða þannig sko. Það er komið sumar, sól í heiði skín og garðyrkjumenn skríða úr fylgsnum sínum til þess að vinna þangað til vöðvabólgan veldur þeim svo óbærilegum hausverk að ekkert verður að gert nema hvíla sig hálfan dag. ég verð semsagt að vinna á morgun en heimavið á sunnudag til þess að halda áfram að pæla í sundur garðinn minn. Uppbygging þar hefst eftir hvítasunnu.
Friður úti

5.02.2006

Syndir feðranna

Ég þarf að taka í rahúllumhæið á sjálfum mér. Alger endurskoðun er nauðsyn ! Þannig er málið vaxið að ég varð við ítrekuðum óskum Steinars Loga um helgina og sýndi honum videoupptöku af U2 tónleikunum. Fyrst hafði hann orð á því að það væri full lítið verið að mynda mig en síðan gerðist það. Bassaleikarinn kom aðeins fram á sviðið og barnið horfið á í fölskvalausri undran. Síðan kom niðurstaðan.
,,Pabbi, þú ert nú bara að reyna að vera einhver gæi... Þú stappar niður fótunum og hristist eins og þú sért að pissa á þig."