7.25.2007

Í fréttum er þetta helst

Ragna
Ragna,
originally uploaded by Stebbi Gunn.
Já það ber hæst um þessar mundir að við Ragna eigum brúðkaupsafmæli í dag. Gott hjá okkur

7.18.2007

Tjahh bara allt gott

Late night snack
Late night snack,
originally uploaded by Stebbi Gunn.
Það er búið að vera gott síðan síðast. Við fórum í góða fjölskylduferð, byrjuðum í Sælingsdal, gistum eina nótt og fórum þaðan niður um Bröttubrekku og í skorradal. Tjaldsvæðið í Selskogi fylltist mjög óvænt af fólki og því afráðið að taka upp tjald og þá var haldið Lundareykjadal og Uxahryggi niður á Þingvelli. Áttum við mjög skemmtilega dagstund á Þingvöllum, en héldum síðan Lyngdalsheiðina um Haukadal, stoppuðum við Geysi og ákváðum síðan að eiga næturstað upp á Hveravöllum. Þaðan héldum við síðan heim, eftir að hafa átt frábæra ferð. Eitthvað var unnið og síðan af stað og nú á Nikulásarmót á Ólafsfirði. Steinar Logi og hans lið varð í öðru sæti í sínum flokki og Þór vann háttprýðiverðlaun í 7. flokki og almennt mikil hamingja með það. Síðan er annað mót á laugardaginn. Hvað sjálfan mig varðar þá hafa öll plön um spilamennsku verið sett í gifs þar sem mér tókst með einstakri lægni að mölva á mér vinstri úlnliðinn í kaffiboði, Jebb ! ég er bara þetta fær ... Ég þarf að vera í gifsi í fimm vikur og má lítið sem ekkert gera. Við erum svona að velta því fyrir okkur hvernig best sé að nýta þetta óvænta getuleysi húsbóndans. Væntanlega kemur eitthvað verulega gott út úr þessu öllusaman.

7.03.2007

Umferðar(ó)menning

Fréttamynd
Fréttamynd,
originally uploaded by Stebbi Gunn.
Ég er sammála því sem ég hef verið að lesa á fréttavefjum og bloggsíðum undanfarið að umferðarmál eru náttúrulega í algerum ólestri. Það er eins og áróður og auglýsingarherferðir séu gagnslausar þegar kemur að umferð og ökuhraða.

Það er náttúrulega hverjum manni ljóst sem keyrir um landið að vegakerfið er ónýtt, hér eru vegir nánast aldrei sléttir eða heilir. Eins er það að vegir eru nánast aldrei nógu breiðir til þess að rúma nútímaumferð og vegaxlir nánast án undantekninga ónýtar. Gott dæmi um þetta er nýr kafli á Borgarfirði þar sem sæmilegum vegarkafla var skipt út fyrir laust grjót og holur þar sem grjótið átti klárlega að vera. Síðan er það náttúrulega sú staðreind að fólk er fífl og hagar sér eins og villimenn,fer um landið eins og óveður, hvort sem er á vegum eða utan þeirra. Það er alveg ljóst að eitthvað þarf að gerast til þess að koma böndum á þetta ástand. Stofnanir og löggæsluembætti þurfa að taka höndum saman og stórauka þarf refsiheimildir fyrir umfrðalagabrot. Ég held að það hafi meiri áhrif en einhverjar útungunarstöðvar fyrir hraðaksturskappa í úthverfum bæja. menn eiga að gjalda við háum sektum upp að einhverjum ákveðnum hraða. Segjum að þú sért tekinn á 115 á þjóðvegi með 90 km hámarkshraða. Þá á það bara að kosta 115.000 krónur. Siðan á að svifta menn ökuréttindum í einn mánuð fyrir hverja fimm km yfir hámrkshraða,og fyrir að fara 20 km yfir hámarkshraða innanbæjar á að svifta menn ökuréttundum í tvo mánuði og síðan í einn mánuð fyrir hverja 5 km þar yfir. Væri einhverju af því sem við greiðum ríkinu í bensíngjaldi skilað aftur út í umfrerðina og í vegagerð væri ekki fjarri lagi að framkvæma hlutina
Menn geta hugsað um það að bíll á 165 km hraða fer 45 metra á sekúndu og á meðan þú kíkir á það hver er að hringja í símann þinn ferðu vegalengd sem samsvarar einum fótboltavelli.
Bara svona pæling

7.02.2007

Færeyjar

Vaðlaheiði
Vaðlaheiði,
originally uploaded by Stebbi Gunn.
Þá gefst loksins tími til þess að blogga svolítið. Ferðin til Færeyja var náttúrulega bara snilldin sem maður bjóst við, utan það að willis bilaði. Fór í honum kúplingin svona frekar en ekki neitt. Við Kristján létum það hins vegar ekki á okkur fá og geystumst um eyjarnar á einhverju Daiwoo ( ?) flaki og höbbðum gaman af. Nú er það svo að Færeyjar eru ekki nema rétt rúmir 100 þús. km2 og við skoðuðum þær all gaumgæfilega bæði af landi og sjó. Þetta samfélag er dálítið heillandi í rólegheitum sínum og vinalegt og friðsælt umhverfi spillir ekki fyrir. Við eignuðumst allnokkra kunningja og eigum heimboð í Vestmanna næst þegar við verðum á ferðinni. Sigling heim með Norrænu var líka skemmtileg og ekki slæmt að vera á balli með suðuramerískri hljómseit þar sem allri sitja og ríghalda sér í stólarmana í veltingi og haugasjó. Síðan fórum við í koju og til marks um sjólagið þá vatnaði undir mann í mesta veltingnum. Náði að skorða mig upp við veggin með því að skríða hálfur undir dýnuna og náði að sofna í klukkutíma eða svo.Varð samt ekkert sjóveikur.