(geð)sveiflukóngurinn
,, og kyrrðin drottnaði yfir okkur - þessi kyrrð, sem er í raun sál fjallanna" Gunnar Gunnarsson - Fjallkirkjan
12.24.2007
12.17.2007
Helgarferð suður um land
Við Steinar Logi fórum til Reykjavíkur um helgina. Það er að segja að við vorum lengstum í Kópavogi og Garðabæ en flugum til og frá Reykjavík. Ég var að spila á Hótel Geysi á laugardagskvöldinu og síðan vorum við bara að delera, fórum í dótabúðir, borðuðum hamborgara og litum við á bensínstöð við Laugarveg, sem að ég tel að hafi verið hápunktur ferðarinnar hjá Loga mínum. Merkilegt ástandið í kringum verslanamiðstöðvarnar. Á laugardeginum hittumst við hljómsveitin á bílaplaninu við Kringluna til að sameinast í bíl. Kringlan er jú miðlæg í Reykjavík. Skemmst er frá að segja að alger sturlun ríkti á bílaplaninu og Ingi píanóleikari varð meira að segja fyrir því að öskrað var á hann að drulla sér. Ekki lá fyrir hvert hann átti að drulla sér þar sem hann stóð fyrir aftan bílinn sinn og beið, en manninum sem lagði beiðnina fram var mjög í mun að komast af bílastæðinu og lái ég honum það svo sem ekki.
Svipað var ástatt við Smáralind, en þangað áttum við Logi erindi á sunnudeginum. Við vorum því fegnir að komast í Ástúnið til Tryggva og fjölskyldu þar sem jólaundirbúningur er á réttu róli.
Fegnastir vorum við samt að sofna heima í gærkvöldi þrátt fyrir versnandi veður og leiðinda flugferð heim.
12.13.2007
12.05.2007
Meira spil
Jebb. Þá er búið að ganga frá því. Tónleikar verða haldnir í Allanum á Akureyri laugardagskvöldið 29. desember. Fram kemur hljómsveit, sem þá verður væntanlega búið að skíra eitthvað. Upphaflega var hugmyndin að halda blústónleika, en síðan hafa mál snúist þannig að flutt verður tónlist af þekktum geislaplötum með listamönnum á borð við Jeff Buckley, Tom Waits, Pearl Jam, David Bowie, the beatles, Rolling Stones, Verve og kannski eitthvað fleira.
Ég er hæstánægður með þetta framtak og hlakka svo sannarlega til að spila í þessari hljómsveit þar sem valinn maður er í hverri stöðu á vellinum, en hana skipa:
Hallgrímur Jónas Ingvason - gítar
Tryggvi Már Gunnarsson - gítar
Eyþór Ingi Gunnlaugsson - söngur
Valgarður Óli Ómarsson - trommur
Stefán Gunnarsson - Bassi
Aldeilis von á sveittu rokki eftir jólasteikina.
12.03.2007
Helgarfrí ???
Ég er þreyttur. Ég missti mig í að halda að ég væri unglingur um helgina og var á næturbrölti bæði á föstudagskvöldið, þegar ég var við gæslu á árshátíð MA með Súlum, og á laugardagskvöldi þegar við Ragna mín fórum í afmælisveislu. Þess utan spilaði ég á tvennum tónleikum. Á föstudaginn hljóp ég í skarðið fyrir veikan bassaleikara og spilaði á barnatónleikum vegna 1. des og á laugardaginn voru styrktartónleikar til handa mæðrastyrksnefnd og allt gott um það. Við náðum nú samt að gera laufabrauð og setja upp seríur hjá okkur. Jólin koma nefninlega bráðum ...




