Uppskrift
,, og kyrrðin drottnaði yfir okkur - þessi kyrrð, sem er í raun sál fjallanna" Gunnar Gunnarsson - Fjallkirkjan
Nóg að gera og ég búinn að klippa eins og vitlaus maður. Vorið þýðir líka að erfiðara er að koma ungviðinu í rúmið á kvöldin og sárt kvartað yfir því að það sé enn dagur þegar Dagur er að kveldi kominn. Strákarnir búnir að fara í sumarklippinguna og fer að koma að því að sækja tjaldvagninn og viðra. Við reiknum með að vera dugleg að ferðast í sumar þar sem fjölskyldufaðirinn er kominn í vinnu þar sem frí er um helgar.Það eina sem gæti hamlað manni er þetta fullkomlega fáránlega eldsneytisverð. Annars er lítið að frétta. Gospeltónleikar á laugardagskvöldið og síðan léttmessa í Glerárkirkju á sunnudagskvöldið. Alltaf eitthvað ...