11.30.2005

Alltaf gaman að taka persónuleikapróf


Stjórnmálaþurs

Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.
Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið. Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann bara hærra - og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra. Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.

Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það er komið gat á þá gömlu... sem skósmiðurinn segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit hvar Guðsteinn er með verslun.

Hvaða tröll ert þú?

Ja, það er kannski eitthvað til í þessu. Annars er ég að skreyta Akureyri þessa dagana og nóg að gera. Seinna.

11.15.2005

Draumaheimar


Ég var að fara yfir nokkrar myndir og rakst á þessa af Steinari Loga. Hún er tekin sumarið 2003 á ferðalagi um austurland.
Ég er að reyna að koma myndasíðunni minni í gang, en það ætlar að verða erfið fæðing.

11.03.2005

Spiladósir

Mikið ógeðslega fer í taugarnar á mér þegar fyrirtæki kjósa að láta spiladósir svara fyrir sig í símann. Ekki bara að það sé óþolandi að hlusta á einhverja maskínu telja upp að tíu með vinning bak við hverja tölu, heldur er nákvæmlega sama hvað þú velur alltaf skal maður lenda í bið með tilheyrandi niðursuðutónlist þangað til að einhverjum vesalings þjónustufulltrúa verður það á að svara, nánast eingöngu til þess að setja mann aftur í bið.
Hvað er eiginlega orðið um allar fullorðnu konurnar sem svöruðu manni svo elskulega og leiðbeindu með langþjálfaðri þolinmæði beint að erindinu.
Ég held að konur ættu að berjast fyrir því að vera ekki skipt útaf fyrir þessi satans apparöt.

11.01.2005

Fleiri fyrirsagnir

í Blaðinu á dag er sagt frá því að í skoðun sé að hefja ferjusiglingar frá Reykjavík til Evrópu ...