6.30.2005


Stegunn i Helsinki
Posted by Hello

6.28.2005

Akureyri 28. júní

Jæja, kominn heim. Við vorum með mjög góða tónleika í tartu á laugardagskvöldið. Keyrðum síðan um nóttina til Tallinn og spiluðum þar á samkomu hjá Hjálpræðishernum á sunnudagsmorguninn og síðan í Tasamine garðinum eftir hádegi. Síðan var bara að drifa hljóðfærin ofan í tösku og hendast í ferjuna til Helsinki. Þar náðum við að vinna upp svefn og flugum heim um hádegi í gær og ég sofnaði sæll og glaður í rúminu mínu um eittleitið í nótt. Þetta er búin að vera nokkuð strembin ferð en náttúrulega óhuggulega skemmtilegt og gaman hvað okkur hefur verið vel tekið og nánast örugt að fleiri ferðir fylgja og sennilega diskur, en það skýrist nú betur seinna. Hvað lífið hér heima varðar þá hafa strákarnir mínir dafnað vel, Ragna jafnvel enn yndislegri en þegar ég fór og búin að selja íbúðina okkar, þannig að nú þarf að setja kraft í að leita sér að nýju heimili áður en við þurfum að afhenda um miðjan september.

6.25.2005

Tartu 25. juni

Tartu er haskolabaer skammt fra russnesku landamaerunum og her er gaman ad vera. Spiludum godan konsert i gaer og erum ad fara i souncheck i Sadamateater eftir halftima. Tartu er halfgerdur Selfoss, her gengur allt ut a ad vera töff ( fann ö a eistneska lyklabordinu). Förum aftur til Talinn eftir tonleikana i kvöld og spilum einu sinni a morgun adur en vid tökum ferjuna til Finnlands. Ta fer tetta ad verda buid. Hlakka til ad koma heim.

Tallinn 23. juni

tad er ekki haegt ad lysa adstaedunum sem folk byr vid tar sem vid vorum ad spila. Tetta eru ad mestu russar, sem urdu eftir i Eistlandi tegar russarnir yfirgafu landid, og hafa hvorki russneskt ne eistneskt vegabref. Tar af leidir ad tad er engin leid fyrir tau ad fa vinnu eda atvinnuleysisbaetur og astandid er hraedilegt. Nu er tridja kynslodin ad vaxa ur grasi tarna og vonleysid er algert. tar af leidir ad ungt folk a tessu svaedi ber enga virdingu, hvorki fyrir sjalfu ser ne odrum. Erfidur dagur i dag.

6.22.2005

Tallinn 22. juni

Komin til Tallinn og buin ad koma okkur fyrir a godum stad i baenum. I fyrramalid forum vid ad spila i fataekrahverfi og sidan a unglingaheimili.

Porvoo 20. juni

Porvo er litill baer um 170 km vestur af Helsinki og við njótum hér lífsins. Skoðunarferðir og sauna og kalt bad ad haetti finna og frabaer midbaer.

6.18.2005

Helsinki 18. juni

Well, her er buinn ad vera yfir 20 stiga hiti og heidskyrt. Vid gistum a hosteli sem er dalitid eins og eftirlaunaheimili fyrir gledikonur, 15 herbergi og eitt sett af klosetti og sturtu. Tad kallar a allgoda skipulagningu og timasetningar. Besti timinn til ad komast i sturtu er 01:30.Hins vegar gengur okkur allt i haginn, utan ad eg var bitinn af mosquito og fekk ad sjalfsogdu sykingu og turfti a sjukrahus.
Helsinki er skritin blanda af Kaupmannahofn og Kopavogi, falleg og grodri prydd, en gatnakerfid eins og tad hafi verid hannad af ofvirku barni. Tar af leidir ad eg er buinn ad villast tvisvar a tessum 4 dogum. Vid erum buin ad spila sex sinnum og eigum nanast fri a morgun, forum ut a land og spilum tvisvar tar og sidan yfir til Tallinn a midvikudag. meira seinna. SG
PS. Eina ordid sem madur skilur i finnsku er ,,evropumeistari" en tad er sagt nakvamlega svona. evropumeistari . Fattadi tad tegar vid Halli vorum ad horfa a fotbolta i sjonvarpinu.

6.14.2005

Á tónleikaferð

Farinn til Finnlands, eða eins og Micael Palin segir:
,, Finnland Finnland Finnland
the country where I quite want to be,
ponytreking or camping, or just waching TV.
Finnland Finnland Finnland
It´s the country to be "

6.10.2005


Posted by Hello
Elmar Dagur unir sér vel í grasinu eins og pabbinn.

6.05.2005

Nohh, tap á tap ofan

Ég sá landsleikinn í gær svona á hlaupum meðan ég var að grilla og skildist einna helst á þeim sem var að talsetja að það væru þrjú lið á vellinum, Ísland, Ungverjaland og Dómaratríóið. Það sem var hins vegar verra að Íslendingar virtust vera að spila á móti báðum hinum liðunum og hlutu því að sjálfsögðu að lúta í gras (sem mun vera að tapa). Nú skal það viðurkennt að ég hef álíka mikið vit á fótbolta og nælonsokkum. Mér var meira að segja skipt út úr Þór B. fyrir mann 17 árum eldri en ég. Þó veit ég að þegar lið tapar og tapar er eitthvað að. Þegar frá er dreginn þessi fasti fórnarkostnaður fótboltans, menn í meiðslum ( í fótbolta eru menn nefninlega í meiðslum, svona eins og við plebbarnir förum í sumarfrí) og einn eða tveir eru í skammarkróknum fyrir að hafa sparkað í eða skyrpt á andstæðinginn eða sagt dómaranum til, beinist kastljósið óneitanlega að þjálfurum. Í landsliði Íslendinga eru tveir þjálfarar. Menn hafa skrifað mikið í blöð og talað í ljósvakamiðla um það að reka ætti þjálfarana. Árangurinn sé ekki ásætanlegur og fordæmi sé fyrir brottvikningu í kvennalandsliði og þar fram eftir götunum. Ég held hins vegar að umræðan um landsliðsþjálfarana sé algerlega á villigötum. Í leiknum á sunnudag var Eiður Smári lang besti maður liðsins. Samt skoraði hann bara einu sinni, skaut í stöngina, lét taka af sér boltann og hitti hann ekki, reifst við dómarann og ég veit ekki hvað. Hinir voru bara eitthvað að dandalast á meðan. Hvað segir þetta okkur. Íslendingar, sem heild, geta ekkert í fótbolta og það veitir ekkert af því að hafa tvo fullorðna menn í því að öskra á þessa skussa, annan á vörnina og hinn á sóknarmenn. Áfram Ásgeir og Logi. Ég hef fulla samúð með ykkur.

6.04.2005

Einn voða vitlaus

Ég erbúinn að setja upp myndahlekk hér til hliðar en myndirnar koma sennilega ekki inn fyrr en í júlí. Var að fara í gegnum myndasafnið mitt og rakst á þessa ,,gospelmynd"
Ég var að koma heim úr gróðurhúsinu seint um kvöld í febrúar og fannst alveg tilvalið að fara og taka mynd til að eiga í handraðanum ef gospelkórinn gæfi einhverntíman út plötu. Útkoman varð að vísu þannig að ef einhver ætlar að gera draugamynd á Akureyri á ég ágætis veggspjald handa honum. Þetta er nátúrulega hálf ónýt mynd, hreyfð og svoleiðis ( enda tekin með annari hendi út um bílglugga), en mér finnst hún pínu flott.



Posted by Hello

6.02.2005

Loksins myndir

Ef ég er ekki þeim mun heimskari ætti að vera mynd hér fyrir neðan.
Þetta mun vera bandið An officer and gentlemen, Halli (gítar), Stebbi (bassi) og Siggi (söngur og gítar).
Fremst er síðan officer Rannvá Olsen

Posted by Hello

Tour dates - mission outreach

Þá eru línur farnar að skýrast mikið varðandi ferðina og hér kemur dagskráin í grófum dráttum. Ég get ekki ímyndað mér annað en að þetta verði gaman.

15. júní miðvikudagur
14:05 Komið til Helsinki
18:30 Kvöldverður og hittingur þátttakenda.

16. júní fimmtudagur
Frí

17. júní föstudagur
09:00 Æfing með finnska trommaranum
15:00 Kaisaniemi Park
16:00 Sound check - Kaisaniemi Park
19:00 Open Air Concert ,, mission outreach" - Kaisaniemi Park
Spilað með hljómsveitum frá Finnlandi ásamt
rokkhljómsveit frá St. Pétursborg

18. júní laugardagur
Spilað á götum Helsinki
10:00 Hakaniemi square
12:30 Aleksanterinkatu
14:00 Runeberg statue Esplanaden
16:00 Sound check - Temple Corps hall
18:30 Tónleikar - Temple Corps hall
21:00 CCC Mikonkatu 20 (Pöbb)
Music happening - með finnsku bandi

19. júní sunnudagur
13:00 ,,Music of life" - Temple Corps hall

20. júní mánudagur
08:30 Lagt af stað til Provoo
09:45 Spilað á munaðarleysingjaheimili í Provoo
Skoðunarferðir það sem eftir er dags

21. júní Þriðjudagur
10:00 Lagt af stað til Nummela children´s camp
þátttaka í music therapy.
16:00 Komið heim

22. júní miðvikudagur
06:45 morgunmatur
07:00 Check in í ferju
08:00 Ferja til Tallinn Eistlandi
11:30 Tallinn. Farið á gististað, Skoðunarferðir

23. júní fimmtudagur
Mission Outreach
Spilað í unglingaskólum og á ´,,féló" heimilum
fyrir unglinga.
Hljómsveitarúta (,,soft drinks included" tekið fram!!)

24. júní föstudagur
11:00 Lagt af stað til Tartu
15:00 Komið til Tartu Skoðunarferð og undirbúningur fyrir tónleika
17:00 Kvöld/miðdegisverður
18:00 sound check - Salemi Kirik
19:00 Tónleikar - Salemi Kirik
22:30 Komið á hótel

25. Júní laugardagur
11:00 Sound check - Reakoja Plats
12:00 Útitónleikar - Reakoja Plats
15:00 Spilað í Eeden verslanamiðstöð
16:00 Sound check - Sadamateater
18:00 Tónleikar - Sadamateater
20:30 Lagt af stað til Tallinn
01:00 Tallinn

26. júní sunnudagur
11:00 Sound check and prep
13:30 Tónleikar - Tammasaare Park
14:45 Faið á höfnina
15:00 Check in
16:00 Ferja til Finnlands
19:30 Komið til Helsinki
Kvöldið frítt fyrir pöbbarölt (eða sofa)

27: júní mánudagur
15:20 Flug FI343 til KEF