(geð)sveiflukóngurinn
,, og kyrrðin drottnaði yfir okkur - þessi kyrrð, sem er í raun sál fjallanna" Gunnar Gunnarsson - Fjallkirkjan
4.28.2006
4.27.2006
U2 að baki
Jebb, þá er það búið og sæluvíman að renna af manni. Tónleikarnir tókust að mínu mati vel, utan að í þriðja lagi (beautiful day) þega playbackið átti að koma inn gerðist ekki neitt. Það varð pínu vandræðagangur á sviðinu en síðan tókum við af skarið spiluðum bara lagið við náðum fluginu aftur. Spiluðum síðan tónleikana rock´n roll style án tölvuskrattans sem sat og glotti framan í Valla trommara. Fínt það.
Þegar öllu þessu er lokið hellast átta eggjarauður af doða yfir mannskapinn og við sátum baksviðs í um 10 mín til að ná andanum. Síðan lifnaði ljós, rót og pizza og síðan heim. Ég ætla að fara snemma að sofa í kvöld.
Nú tekur við rólegri tími. Ég þarf líka að einbeita mér aðeins að strákunum mínum og taka smá skorpu í að vera vakandi í vinnunni.
Af frekara tónlistarlífi er það að frétta að ég spila á næstunni inn á plötu fyrir Snorra nokkur Guðvarðar (veit ekki enn hvað það er), gigg með karlakór Akureyrar-Geysi og Heimi Ingimars sem einsöngvara (Ennþá eitthvað nýtt. Ég held að ég hafi aldrei spilað með karlakór.) og síðan geri ég ráð fyrir að farið verði að æfa fyrir ferðina til Hollands, en gospelsveitin Officer and gentlemen er bókuð á tvennum tónleikum í Amsterdam um hvítasunnuna.
Já og svo þarf ég endilega að fara að koma upp ljósinu á baðinu...
4.25.2006
Fuglaflensan
Fann þessa í safninu þegar ég var að vinna í myndasíðunni. Var nú örugglega búinn að birta hana áður, en hún tengist bara svo skemmtilegri minningu að ég skelli henni fram aftur.
Skyldi þessi glæfraför okkar bræðra eftir fugli hafa verið sú síðasta ?
Held nú varla og ég hlakka til að veiða með honum í haust
U2 sveifla og fegrun garða
Já nú er það loksins komið á koppinn. Búið að stilla upp niðri í Sjalla og gera klárt. Generalprufa í kvöld og svo rokk og ról á morgun, Úff hvað við sándum svaðalega.
Annars er það helst að frétt að nú hrannast upp pantanir í garðaklippingu og eins gott fyrir strákinn að fara að gera eitthvað í málunum. Fyrirhuguð Reykjavíkurferð helgarinnar er í uppnámi og snjósleðinn á leiðinni í sumarhaga fram í sveit. Síðan er nýja myndasíðan alltaf á leiðinni. Sjáum hvað setur en fyrst er það U2 ...
4.18.2006
Halló fólkens
Ég er ekki dauður þó svo ég sé búinn að vera hundveikur í mánuð. Ég fékk eitthvað sem heitir einkyrningssótt og lýsir sér í yfir 40 stiga hita og algeru máttleysi vikum saman. Ekkert sérlega skemmtileg sending það en ég er upprisinn líkt og mætur maður forðum og nú fara hlutirnir að gerast.







