U2 að baki
Jebb, þá er það búið og sæluvíman að renna af manni. Tónleikarnir tókust að mínu mati vel, utan að í þriðja lagi (beautiful day) þega playbackið átti að koma inn gerðist ekki neitt. Það varð pínu vandræðagangur á sviðinu en síðan tókum við af skarið spiluðum bara lagið við náðum fluginu aftur. Spiluðum síðan tónleikana rock´n roll style án tölvuskrattans sem sat og glotti framan í Valla trommara. Fínt það.
Þegar öllu þessu er lokið hellast átta eggjarauður af doða yfir mannskapinn og við sátum baksviðs í um 10 mín til að ná andanum. Síðan lifnaði ljós, rót og pizza og síðan heim. Ég ætla að fara snemma að sofa í kvöld.
Nú tekur við rólegri tími. Ég þarf líka að einbeita mér aðeins að strákunum mínum og taka smá skorpu í að vera vakandi í vinnunni.
Af frekara tónlistarlífi er það að frétta að ég spila á næstunni inn á plötu fyrir Snorra nokkur Guðvarðar (veit ekki enn hvað það er), gigg með karlakór Akureyrar-Geysi og Heimi Ingimars sem einsöngvara (Ennþá eitthvað nýtt. Ég held að ég hafi aldrei spilað með karlakór.) og síðan geri ég ráð fyrir að farið verði að æfa fyrir ferðina til Hollands, en gospelsveitin Officer and gentlemen er bókuð á tvennum tónleikum í Amsterdam um hvítasunnuna.
Já og svo þarf ég endilega að fara að koma upp ljósinu á baðinu...

2 Comments:
Er ekki bara svo stutt til jóla að það borgar sig ekki að Setja ljósið upp nú í sumar. Er ekki allt svona smálegt gert fyrir jólin?
Jú það fer líka að verða svo bjart
Post a Comment
<< Home