3.01.2006

án titils

Mér finnst erfitt að skíra færslurnar mínar. Ég var í Reykjavík og Kópavogi seinnipart síðustu viku, já og reyndar Garðabæ líka. Fór að hitta manninn sem viðheldur rafkerfinu í mér. Það var gott. Hitti líka Hjölla og Guðrúnu sem var líka mjög gott og gisti fyrst hjá Tryggva og fjölskyldu, sem var yfirmáta gott og síðan hjá Sigríði og Rósant þegar Ragna mín hafði fyllt minn flokk. Það var mjög gott. Í heildina má segja að þetta hafi verið góð ferð.
Flýttum okkur síðan heim á laugardagsmorguninn til þess að ég gæti spilað nokkra Elvis-slagara með Friðriki Ómari seinnipartinn. Ferðin heim var dásamleg í birtingunni og hughrifin slík að meira segja Ragna mín sagði fátt framan af. Kannski var hún bara ekki vöknuð.
Það er ösku(r)dagur í dag og ekki frítt við að manni verði órótt við allar þessar litlu Silvíur Nætur sem vaða hér uppi með dólg. Kannski maður verði búinn að sá einni gusu af stjúpum svolítið snemma á næsta ári og leggi sitt lóð á móti sykrinum með því að gefa blóm. Hugmynd.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home