2.16.2006

Staðfesta

Ég hef átt erfitt með að blogga upp á síðkastið. Þegar maður missir niður dampinn er erfitt að komast á flug aftur. Eftir því sem lengra líður á milli innskota finnst manni eins og eitthvað mekilegt þurfi að koma fram í hverri færslu og einhvernveginn nær ekkert ólympíulágmarkinu.
Ég hef til dæmis alveg sleppt því að blogga um þorrablót, helvítis sjálfstæðismennina, kvennmannsbelginn sem vogaði sér að hringja heim og óska eftir þátttöku minni í prófkjöri framsóknarfloksins, Eurovision, nýja kaffið í vinnunni og bílinn sem ég var að kaupa. Allt fullkomlega þess vert að komast á síður þessa rafræna snýtipappírs. Kannski maður taki sig á.

1 Comments:

At 1:28 PM, Blogger RobbiK said...

Já, svona blogglægðir geta verið varasamur.

Verður að taka þig á þar sem færslurnar þínar eru brilliant :)

 

Post a Comment

<< Home