2.06.2006

Bömmer

Ég er í ótrúlegri fýlu við Bono. Þessi mannskratti, sem er ein af uppeldihetjum mínum í tónlist, hefur látið narra sig út í það að myrða hið stórkostlega lag Peter Gabriel ,, don´t give up". Ég veit ekki hver hefur átt hönk upp í bakið á honum en hann er að þjösnast á þessum dýrgrip í útvarpinu dag eftir dag ásamt einhverri af þessum bikiniklæddu smástelpum sem helst komast til metorða í tónlistarheimi samtímans. Skammastu þín Bono.

3 Comments:

At 12:46 AM, Anonymous Anonymous said...

beib.....tetta kalla eg ad eyda orku i otarfa.

 
At 3:36 PM, Blogger Stebbi said...

Iss, kallaðu það hvað sem þú vilt. réttlát reiði veitir manni styrk til góðra verka.

 
At 11:33 PM, Blogger Tryggvi Már said...

sammála þér bróðir sæll, heyrði þetta á leiðinni heim úr vinnunni áðan, og þetta er ekki góð útgáfa.

 

Post a Comment

<< Home