3.10.2006

Ansi hreint hressandi

Ég hef varla verið mönnum sinnandi að undanförnu sökum flensu á heimilinu. Ég veit ekki hvort þetta var upphitun fyrir fuglaflensuna. Ég skifaði einhverntíman að ég væri haldinn stökkbreittu afbrigði fuglaflensu eða svokallaðri furðufuglaflensu og ég hélt satt að segja að þar með væri ég ónæmur fyrir annari flensu á meðan. Sýnir kannski best hvursu illa ég er að mér í læknisfræði.
Þessum flensuskratta er reyndar fyrir að þakka að ég hef getað fylgst vel með umræðum um vatnalög á alþingi. Það var mikil Guðs blessun. Þessar umræður voru akkurat það sem ég þurfti til þess að verða algerlega afhuga stjórnmálum og pólitík.
Svona segja þingmenn hver öðrum að halda kjafti:
,, ég fagna spurningu háttvirts þingmanns og bendi hæstvirtum forseta á að ég ber virðingu fyrir stöfum háttvirtrar nefndar en ég lýsi mig algerlega mótfallinn orðalagi spurningar háttvirts þingmanns og legg áherslu á að málflutningur hans og röksemdir eru í engu samboðin hinu háa alþingi og þeim háttvirtu þingmönnum sem hér hafa talað. Ef þetta er meinning hátvirtrar nefndar þá er ekkert um að tala hér úr þessum ræðustóli og ástæðulaust fyrir hæstvirtan forseta að halda hinu háa alþingi á fundi fram undir rauðan morgun við að svara virðulegum nefndarmönnum. Ég bendi á að málflutningur háttvirts flokkbróðurs míns fól í sér beina spurningu til hæstvirts ráðherra og er ekki sæmandi ríkisstjórn íslands að senda undirsáta sína í erindrekstur upp í ræðustól hins háa alþingis til þess eins að fara með staðlausa stafi.''

0 Comments:

Post a Comment

<< Home