List eða lyst
Nú er listahátíð í Reykjavík og þá má allt. Í nafni þessara herlegheita er nú verið að fróa manni, með lauk í rassgatinu, á landbúnaðarvél hér á listasafninu og sunnan heiða sýnir svissnesk kona samfaramyndbönd og sjálfsfróunarmyndir af sér í Hafnarborg. Fólk, sem alla venjulega daga fytjar upp á trýnið og úthrópar fólk eins og Tommy og Pamelu er nú kvöld eftir kvöld að virða fyrir sér sömu hluti, nema núna er það gert með hvítvín í glasi og í sparifötunum. Sjálfsskoðun í gegnum sjálfsfróun er ekki klám nema hún sé borin á borð fyrir annað fólk og ég ætla að gerast svo mikill myndlistarrýnandi að lýsa því yfir að þetta er sóðaskapur og á ekkert skylt við list,en gæti hugsanleg vakið lyst hjá einhverjum og er þá eftir allt bara klám.
