Tónlistin lifir
Ég er þessa dagana að taka upp mitt fyrsta alvöru verkefni sem upptökumaður. Kór frímúrara á Akureyri. Upptökum lýkur vonandi í kvöld og þá tekur við mix og mastering, allt voða spennandi. GT hljóðvinnsla vinnur verkið og stöndum við feðgar hlið við hlið bak við herlegheitin. Síðan eru gospeltónleikarnir í Ketilhúsinu þann 20. maí og afmælistónleikar TDH 27. á Gauk á stöng. Þá vænti ég að taki við æfingar hjá okkur sem erum að fara til í víking kringum Eystrasaltið þann 15. júní. Eins gott að maður á inni fæðingarorlof.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home