Timburmenn
Þá er nú mesta átinu lokið í bili og ég á leiðinni suður á eftir. Til stóð að við færum öll fjölskyldan, en úr því verður ekki og verð ég því einn fyrir sunnan. Síðan er bara að hafa sig heim eftir síðustu vakt og fagna nýju ári í faðmi fjalla.
Aðfangadagskvöld var okkur ánægjulegt og menn una sáttir við sitt. Við Ragna gáfum Steinari Loga rafmagnsgítar og magnara og var að kvöldi jóladags stofnuð hljómsveitin Kvöldið rokkar og fyrsta æfing hljómsveitarinnar var í bílskúrnum okkar í morgun. Hljómsveitin er skipuð krökkum úr götunni og er markmiðið að spila á N4. Göfugt. Ég geri ekki ráð fyrir að blogga mikið fram að áramótum og óska ykkur öllum gæfu á nýju ári. Stebbi.
