4.20.2005

Jú, hann lifir

Vorið er tími garðyrkjumanna og því ekki tími bloggs, ja nema endrum og sinnum. Setti nú bara þessar línur niður til að óska þeim sem lesa gleðilegs sumars. Já og til að segja ykkur frá því að ég er að fara í tónleikaferð um Finnland, Eistland og Lettland seinnihlutan í júní. Great !! 8 tónleikar á 15 dögum og æskudraumurinn um túr erlendis að verða að veruleika. Fer með tríó Rannvá Olsen að spila blús og jassskotið gospel, afar fína mússígg. Gaman að vera ég.

4.12.2005

Stórmarkaðir

eru alveg hundleiðinlegir í eðli sínu. Konur þrífast mjög vel í stórmörkuðum og eru einstaklega glúrnar í að sjá nytsemd í ótrúlegustu hlutum og þar af leiðandi hafa þær ríka þörf fyrir að vafra um í innviðum þessara satansmustera með logandi ljós útsjónarsemi og hagvisku í útréttri hendi.
Ég aftur á móti er ekki þessarar náttúru og því hef ég fundið ýmsar leiðir til þess að drepast ekki úr leiðindum meðan Ragna finnur eitt og annað sem hana vanhagar um.

- Að færa standa með útsölumerkingum á milli rekka. Þetta er pottþétt og fólkið fylgir til að gera góð kaup
- Að dunda sér við að stilla 30 vekjaraklukkur þannig að þær hringi með fimm mínútna millibili
- Að fela sig inni í fataslám og stökkva á breskar húsmæður úr launsátri og hrópa
,, Buy me, buy me !!!"
- Að finna öryggismyndavél og nota hana sem spegil á meðan maður slítur hár úr nefinu
- Að dedúast ískyggilega í nærfatadeildum kvenna, líta flóttalega í kringum sig og humma stefið úr Mission impossible frekar hátt.
-Að grípa um höfuðið og kastast til og frá þegar tilkynningar koma í hátalarakerfið og grenja ,, þegiðu.. þegiðu... ég hata þig...þú stjórnar mér ekki !!!!
( má líka nota þegar afgreiðslufólk biðst til að hjálpa nema þá er betra að grenja ,, af hverju ráðast allir á mig ... látið mig vera... látið mig vera")
- Að fara inn í mátunarklefa í fínni búð og hrópa ,, Það vantar klósettpappír"