7.18.2005

Hrafnaþing

Heyrðu, ég hlustaði fyrir slysni á Talstöðina klukkan eitt í dag og varð vitni að einhverju sem heitir Hrafnaþing. Þar lætur Ingvi Hrafn Jónsson gamminn geysa um menn og málefni og mátar sjálfan sig í annarri hverri setningu. Þvílíkt bull sem uppúr einum búki getur oltið. Maðurinn er náttúrulega algerlega úti að veiða. Verð að hlusta aftur á morgun. Skora á alla sem sakna Tvíhöfða að hlusta. Samhengislaus vitleysa er alltaf hressandi.

7.05.2005


Það er fallegt í Eyjafirði