11.24.2007

Að norðan

 
 


Gríðarlegur tannholdsbólgufaraldur geysar nú á Akureyri og hætt við að hann stingi sér víða niður. Hér á bæ hafa menn ekki farið varhluta af ófögnuðnum.
Posted by Picasa

11.21.2007

God is looking

God is looking
God is looking,
originally uploaded by Stebbi Gunn.
Tók að gamni mínu eitt af þessum eldhressu persónuleikaprófum á netinu. Að þessu sinni var verið að kanna trúarhneigð og í ljós kom að mínar skoðanir falla best að frjálslyndum mótmælendum. sem kemur mér lítið á óvart svo sem. Annað sem ég vissi ekki að ég er mjög líklegur til að vera kvekari eða eitthvað sem heitir Unitarian Universalisti. Það eru hins vegar litla líkur á að ég taki upp Islam eða Hinduatrú samkvæmt þessu ágæta prófi.

11.19.2007

Tölvudrusla og fótabeygla

 ElmarDagur fékk sína fyrstu fótabeyglu í kvöld, en fyrir leikmann er fótabeygla gott norðleskt orð yfir vaxtaverki. Harðast leikur ófögnuður þessi sköflunga og hnjáliði og getur eftir því sem ég man best bara verið fjandi vont. Ég get nú annars ekki hafa fengið þetta af jafn mikilli slæmsku og margir aðrir, svona stubbur eins og ég er. Ekki er þó von á öðru en að Elmar eigi eftir kenna þessa stöku sinnum ef eitthvað er að marka fortíð föður hans og bróður. Það er nú hálf einkennilegt að berjast við brosviprurnar meðan maður tekst á við óhuggandi drenginn, en þeta eru jú klár merki þess að hann er að vaxa og dafna og því ekki hægt annað en að verða stoltur yfir hörmungunum. skrítið.
Annars er vél sú er þetta er ritað á alltaf að stríða mér eitthvað og týna hinu og þessu. Skemmtilegast finnst henni að týna hljóðkortinu mínu, hinu ágæta M-audio korti, og gera mér ókleyft að leika listir mínar inn á harða diskinn. Þetta er sérlega bagalegt og ég þarf að taka á honum stóra mínum til þess að kenna bykkjunni ekki að fljúga, jafn borðleggjandi og það er útum þakgluggann hér beint fyrir ofan mig. Ég mun þó um stund samþykja það að hér sé um borðtölvu að ræða en ekki fartölvu, sem án efa væri farin að ferðast ...
Posted by Picasa

11.12.2007

MInneapolis

 Ferðin okkar Rögnu tókst vel. Við sáum MInesota Timberwolves og Orlando Magic spila, skoðuðum Minneapolis, sem er víðfem borg hönnuð í kring um vef útivistarstíga og almenningsgarða,fórum í leikhús og sáum frábæra sýningu, the lion king sem var meiriháttar sjónarspil með tónlist á heimsmælikvarða, versluðum í MOA (mall of america eða Monarcy of Anticrist, eftir því hvernig menn vilja hafa það), sáum sýningu á verkum Fridu Kahlo, borðuðum góðan (og vel útilátinn) mat og höfðum það gott. Ragna sótti námskeiðið sitt og ég ékk með strákunum, fór í snjósleðabúðir, Guitar center og svoleiðis strákastöff. Dakk meiri bjór í þessari ferð en ég gerði á öllu síðasta ári og er það gott. Siðan er bara að safna sér saman og fara að vinna. Kannski maður kíki aðeins til rjúpna ef ekki er búið að fæla þær allar út í Hrísey, en mér skilst að menn hafi tekið vertiðina með trompi hér fyrir norðan. Veturinn er í nánd og búið að opna yrir æfingar í Hlíðarfjalli. þá er þess vart langt að bíða að maður fari að komast á skíði ...
Posted by Picasa

11.01.2007

Camping in Klakksvik

Camping in Klakksvik
Camping in Klakksvik,
originally uploaded by Stebbi Gunn.
Setti þessa mynd nú bara inn vegna þess að á morgun leggjum við Ragna af stað í 10 daga ferð til USA og maður getur aðeins vonað að sú ferð komi til með að jafna ferð okkar Krisjáns til Færeyja í sumar, sem var náttúrulega þvílík snilld sem mest getur orðið . Þarna vorum við í Klakksvík og tjaldsvæðið var bílastæðið hjá leikskólanum. Vorum þarna lengur en ætluðum þar sem að sá græni bilaði og þurfti að hvíla sig yfir helgi en það kom ekki að sök þar sem bifvélavirkinn lánaði okkur bara bílinn sinn á meðan !! Færeyingar eru snilldarfólk
Annars var ég að gera athugasemd við framkvæmdir á Hengilssvæðinu á hengill.nu og skora á alla sem hingað rata að gera slíkt hið sama.